[::..Allur réttur áskilinn, öll opinber birting og/eða eftirritun í opinberum
fréttamiðlum, þ.m.t. prent-, vef-, sjónvarps- og útvarpsmiðlum, er óheimil án skriflegs
samþykkis höfundar...::]
Bright, bright sunshiny day Jæja, það er ósköp gott að vera byrjaður aftur í skólanum, þótt helgarfrí núna sé sérlega velkomið. Klukkan er að verða tvö hjá mér og ég er búin í dag og það er komið vor. Krókusar og páskaliljur voru komnar upp í síðustu viku, en núna.. núna er einhvern veginn allt farið í gang, ég er búin að sjá blómstrandi tré og runna og fuglarnir eru alveg spinnegal útum allt. OG.... (sorry maður.. bara verð) ÞAÐ ER TUTTUGU OG ÞRIGGJA STIGA HITI NÚNA! Ég er farin út í sólina!
:: geimVEIRA:: kl. 18:34:: [+] ::
...
Vóó! Komin einkunn úr enskunni..... Fékk 100% í College Writing: Sculptures and Styles! = A Spank you very much!
:: geimVEIRA:: kl. 23:21:: [+] ::
...
Damn you Dave Tíminn sem ég átti að fara í hjá Marlon Saunders féll niður því hann syngur í Letterman í kvöld, er í upptökum núna. Ok - með betri afsökunum til að svíkja mann um tíma. Ég er smá spæld samt, þetta er með skemmtilegri tímunum.
:: geimVEIRA:: kl. 17:39:: [+] ::
...
Reap as ye sow and whatnot... Eartraining: Singing 94% - Written test - 100% = 9,6 = A Mics PA Systems & the Singer: 100% = A Rhythm Section Grooves: 83% = B Sightsinging: 85% = B Writing Skills test - 100% project - 95% = A Afro-Cuban Percussion for non-percussionists: 95% = A
Ég á eftir að fá út úr enskunni, hljómfræðinni og R&B Styles Lab tímanum, en so far so good, segi ég nú bara... Í fokkings Rhythm Section Grooves tímanum gerði ég tvö ömurleg mistök - algjör aulamistök t.d. var dregið af mér fyrir að gleyma að setja nafnið mitt á chartið - arrg.. svoleiðis crap..., svo ég veit að ég hefði átt að geta betur þar... oh well, þetta eru miðannarpróf, nú mun þetta þyngjast allverulega allt saman. Úffsí - en ég er ánægð með þessar einkunnir. Svo fékk ég út úr samspilsratingsauditioninu sem ég fór í, ég hækkaði mig allavega þar - ég er svona smá efins hvort hafi verið gáfulegt að fara í prófið í midtermsvikunni, en ég er allavega komin með meðaltalið upp um einn heilan.. úr samtals 2 í 3.. (af fokkings 8!) nótnalesturinn dregur mig ennþá niður, en það kemur vonandi með kalda vatninu. Þetta er nú bara fyrsta önn af 8 líka. Breathe in, breathe out... Vax on, vax off...
Hr. Tyner var flottur. Hann spilaði einn á flygil, alveg eins og engill og raulaði með. Hann er orðinn gamall blessaður en spilaði eins og moðerfokker, hann var svo krúttlegur þegar var klappað fyrir honum var hann svona feiminn og stundum tuldraði hann í mækinn. Fólk reis úr sætum og klappaði hann upp, þegar karlinn kom aftur var kallað úr salnum: "Giant Steps!" karlinn maldaði smá í móinn en dúndraði svo GS með stæl. Ég er mjög ánægð að hafa náð þessum tónleikum, hann kann ALVEG á píanó þessi!
:: geimVEIRA:: kl. 05:02:: [+] ::
...
:: laugardagur, mars 25, 2006 ::
McCoy Tyner Jæja nú fer ég á jazztónleika í kvöld! Nú læt ég renna í bað og set karlinn á fóninn.
:: geimVEIRA:: kl. 22:14:: [+] ::
...
Ég sá "Thank you for smoking" í dag. Sniðug mynd. :)
:: geimVEIRA:: kl. 04:12:: [+] ::
...
Gentlemen, open your sacks!
:: geimVEIRA:: kl. 04:05:: [+] ::
...
Jæja... frúin í fríi áttaði sig á því að hún hefur engan veginn staðið sig í myndatökunum. Ég dreif því í að taka í það minnsta myndir af íbúðinni nú þegar húsgögnum hefur fjölgað. Ég er enn að vinna í hvernig gestarúmsmálum verður háttað, en það fer vonandi að leysast, enda ekki seinna vænna því mútta tútta kemur til mín um páskana. Myndirnar eru hér.
Á laugardaginn er komið ár síðan ég massaði áheyrnarprófið í Dublin! Og .. og núna er ég hér! Ég er ennþá hissa maður!
:: geimVEIRA:: kl. 05:32:: [+] ::
...
:: þriðjudagur, mars 21, 2006 ::
Sófadýr ekki lesa lengra.
Jibbíííí jibbíí... Ég fer á jazztónleika á laugardaginn með McCoy Tyner!
:: geimVEIRA:: kl. 20:16:: [+] ::
...
:: mánudagur, mars 20, 2006 ::
Ég bjó mér til ferskjuananasjarðarberjabananajógúrthristing áðan. Hann var svo þykkur að ég gat ekki hellt honum. Ég reyndi. En það fór jafnmikið framhjá glasinu og ofaní það.
:: geimVEIRA:: kl. 16:29:: [+] ::
...
:: laugardagur, mars 18, 2006 ::
Jæja, ég hef núna tekið 11 próf í Berklee takk fyrir! Eitt þeirra var audition fyrir samspil næstu annar, svo var afro-cuban trommupróf þarna líka, mikið fjör. Voðagott að eiga núna smá frí samt. Nú er ég komin í hið víðfræga "springbreak".
:: geimVEIRA:: kl. 01:45:: [+] ::
...
:: miðvikudagur, mars 15, 2006 ::
What is better than a rose on your piano?
-Tulips on your organ.
:: geimVEIRA:: kl. 03:30:: [+] ::
...
Það er svo einfalt. Það þarf bara DNA og Human Upgrades ræktar það sem þig vantar!
:: geimVEIRA:: kl. 04:57:: [+] ::
...
Do Me Fa Se So Það var sko átján stiga hiti hér á föstudaginn og 16 stig á laugardaginn. Það er megn vorilmur í lofti og í dag sá ég blómstrandi krókusanga á leiðinni í skólann. Ég er búin í 4 prófum. Þau hafa gengið ágætlega hingað til. Eftir skóla í dag fór ég svo að vinna í verkefni í Reason fyrir "Writing Skills" ég var svo lengi að þessu - mjög skemmtilegt en ég var svo mikið að fikta - ég var ekkert lítið fegin þegar ég sá að það þarf ekki að skila því fyrr en á fimmtudaginn, enda var alveg komið nóg.
Ég gat því verslað inn og þvegið þvott og svo horfði ég á Supernanny og voðalega væminn en athyglisverðan þátt þar sem sjúklingum er gefinn kostur á glænýjum læknismeðferðum. Í síðustu viku fékk blindur gaur sýn (magnað að horfa á þegar hann sá fjölskyldu sína í fyrsta skipti) og í þættinum í kvöld var stelpa með alveg svaaaaakalegan Tourette's læknuð. Hún var sett í heilaskurðaðgerð og settar elektróður í heilann á henni og tölvur í bakið sem skemma Tourette´s signalið - megakúl. Svo var lítill strákur með suddalega hryggskekkju og samgróin rif lagaður og spengdur með títaníum. Þetta spilar á mann eins og fiðlu - maður lifir sig alveg inn í þetta.
Á morgun er langur dagur en skemmtilegur, ég fer í fyrsta tímann kl. 9 og kemst ekki heim fyrr en ca hálftíu annaðkvöld. Ég fer í próf en líka í tíma í röddunarpælingum sem heitir því þjála nafni "Performance Skills for the Background Singer". Við erum ca 15 í bekk, strákar og stelpur og kennarinn lætur okkur radda alveg upp í 8 parta, allt mjög heavy ryþmískt og brjálaðar spennur í gangi. Þessi kennari hefur verið dáldið frá, svo það verður uppbótartími með fleiri bekkjum, svo það verður æðislegur kór sem maður syngur annað kvöld, ég hlakka mjög til.
Jæja, best að taka úr þurrkaranum.
:: geimVEIRA:: kl. 03:23:: [+] ::
...
:: föstudagur, mars 10, 2006 ::
Loðhumar Ég byrja í prófum á morgun. Um helgina er spáð 16 stiga hita í Boston. Kentucy Fried Chicken notar Sweet Home Alabama í sjónvarpsauglýsingar . Mér gengur ekki vel að finna mér nótur að R&B lögum til að syngja. Í dag í vettvangsferð á listasafnið var lófaskoðun milli kynþátta. Ég fer í fyrsta trommuprófið mitt í næstu viku. Ég nenni ekki bólum - húðin mín er að fríka. 24.
:: geimVEIRA:: kl. 04:56:: [+] ::
...
:: mánudagur, mars 06, 2006 ::
Jamm og jú jú Jú, ég er enn meðal yðar. Amen. Ég sá Capote um daginn, svo ég er mjög sátt við hann Philip Seymor Hoffman sem Óskarsverðlaunahafa, hann var frábær í þessu hlutverki. Ég hef verið ósköp orðlaus eitthvað blogglega séð undanfarið, appsakkið hljééð.
Ég hef verið upptekin í skólanum, ég fór í hljómfræðipróf, hélt fyrirlestur í enskutíma og skilaði inn ritgerð um verk eftir Picasso sem ég er í Listasafninu Museum of Fine Art hér í Boston (sem er í gangfæri heiman frá mér), nú og svo allt hitt.
Ég tékkaði á jamsession á föstudagskvöldið, það var ágætt alveg. Það er búið að vera kalt, en voða fallegt veður hérna, svo maður hefur verið svoldið latur að fara eitthvað á kvöldin og svona. Ég fór þó í gærkvöldi í leiðangur og í pizzu með frænku minni, fékk spes pizzu: gorgonzola, prociuotto og balsamediklegnum fíkjum og vorlauk, mjög góð blanda, svo horfðum við á Proof.
Í dag var ég í 2 tíma að massa skattframtalið... nú erum ég og hinn ammríski skattmann Mr. IRS búin að kynnast ágætlega. Ég þvoði þvott í kvöld, ég er bara frekar mygluð, það hefur verið samnefnarinn undanfarið... óttalegt mygl fyrir utan skólann, sem er skemmtilegur.
Á morgun er enn einn mánudagurinn og á föstudaginn byrja ég í midterms. Hasta la vista!