[::..Allur réttur áskilinn, öll opinber birting og/eða eftirritun í opinberum
fréttamiðlum, þ.m.t. prent-, vef-, sjónvarps- og útvarpsmiðlum, er óheimil án skriflegs
samþykkis höfundar...::]
Sól sól skín á mig! Ég ákvað að taka mér sumarfrí í dag, enda kiknaði ég í hnjánum þegar sama veðri og í gær var lofað í veðurfréttum gærdagsins. Ég sé ekki eftir því, er búin að liggja á tjalddýnunni minni úti á svölum og er núna með lappann bloggandi berfætt með sólgleraugu. Ég sofnaði meira að segja áðan, nú er að sjá hvort sólarvörn nr. 30 sé of mikið, en ég sá engan lit kominn á mig ennþá allavega áðan sýndist mér, en í versta fallir er þetta búið að vera sérlega ljúft að liggja úti og hlusta á tónlist og æfa sig með hristuna og reyna að finna nú meira en tvö groove... veit ekki alveg hvernig þetta er að ganga hjá mér, en ég held að það sé góðs viti að heyra í það minnsta fyrir sér mynstrin þótt þau komi nú ekki alveg ennþá út eins og ég meina.
Útilegan var ágætlega heppnuð alveg, nokkur trúnó tekin með stæl sem og heil söngbók í stafrófsröð sungin. Furðuleiki helgarinnar var samt þegar einhver náungi á tjaldstæðinu (ekki með okkar hópi samt) sem setið hafði með okkar hóp í söngnum í fyrrakvöld, tók sig til og losaði þvag svo til í beinni augsýn við mig og Söndru og var ekkert að flýta sér með sýninguna, síðan upphófst mikið fyllerísrugl svo maður var farinn að vakta hann (ég var orðin hrædd um að honum væri að detta í hug að fara að keyra því hann var kominn inn í bílinn sinn - það gerði hann sem betur fer ekki) en hann samt ákvað hann í félagi við vin sinn að hoppa ofan á bílnum sínum svo hann dældaðist alveg, sem okkur Söndru fannst nú mikill óþarfi en honum fannst mjög sniðugt (ég var orðin hrædd um að hann færi í næstu bíla á bílastæðinu fyrst honum þætti þetta svona gaman). En þar sem ég hugsaði með mér hvað þessi maður væri í miklu rugli kom allt í einu tengingin: Þá var þetta náunginn sem við Unnar hjálpuðum síðasta vetur (sjá þvaður ). Það varð til þess að geimVEIRA tók vininn alveg á beinið og gerði ég mitt besta til að benda honum á að það væri ekki tilviljun að hann væri bara í tómu rugli alltaf þegar ég hitti hann, gaf honum hressilega inn og bað hann að hætta að þakka mér fyrir hjálpina en þakka mér frekar með því að taka sig í gegn. Greyið strákurinn greinilega alveg í ruglinu bara. Merkilegt samt að hann skuli tvisvar lenda í að ég fari að reyna að hafa vit fyrir honum. Vona að hann taki sig á blessaður, ég gat þó fengið upp úr honum að honum var alls ekki ekið á slysadeild eins og ítrekað var óskað eftir. Ég er mjög hneyksluð á því, enda ekki alveg aðalatriði hvort hann datt vegna dóps/drykkju/klaufaskaps heldur að tryggja að maðurinn væri óslasaður eftir. Ömurlega léleg þjónusta hjá lögginu þessa nótt segi ég bara - iss!
Ég er að hlusta á Incognito - hressandi. Jæja best að fá sér eitthvað að borða.
:: geimVEIRA:: kl. 14:14:: [+] ::
...