[::..Allur réttur áskilinn, öll opinber birting og/eða eftirritun í opinberum
fréttamiðlum, þ.m.t. prent-, vef-, sjónvarps- og útvarpsmiðlum, er óheimil án skriflegs
samþykkis höfundar...::]
Ú jé... fór á helvíti gott clinic hjá Chuck D úr Public Enemy í síðustu viku. Klár gaur, hafði margt gáfulegt að segja.
Á miðvikudagskvöldið fór ég svo út að borða og síðan í bíó á Borat með sænskum, portúgölskum og hawaískum vinum og kunningjum úr Berklee. Á fimmtudaginn var á Thanksgiving var mér boðið í mat heim til portúgalska parsins Nuno og Soniu, hann er gítarkaddl sem er í MP&E og hún er að taka master í grafískri hönnun. Við kjöftuðum heilmikið, en í hópinn bættist svissneskur gítarleikari, í matinn fengum við rétt sem ku heita "samkynhneigður kjúklingur" upp á portúgölsku (kjúklingur með hvítlauk og heilli sítrónu í rassinum) mjög kósí kvöld alveg. Síðan fórum við Nuno, Sonia og hinn sænski Niklas í leiðangur. Nuno hafði nefninlega planað að fara á tónleika með nafna sínum Nuno Bettencourt og bauð okkur með. Tónleikarnir voru í Hudson í voða fínu félagsheimili félags Portúgalskra innflytjenda á svæðinu. Við fengum okkur portúgalskan mat og bjór og heilmikið rokk í æð. Tónleikarnir voru fjölskyldutjútt Bettencourts og á svæðinu voru vinir hans og kunningjar, þ.á.m. hljómsveitarfélagi hans úr Extreme, söngvarinn Gary Cherone (var líka í Van Halen) sem söng með bandinu og þar sem þetta var nettur sveitaballafílíngur bara, náðum við myndum af karlinum, Nuno reyndar missti af nafna sínum, smá spæling þar. More Than Words Þetta var heilmikið stuð bara, rosalega gaman að skipta um umhverfi. Nuno lánaði mér DVD með Lost, sem ég átti alltaf eftir að sjá, og sökkti ég mér í fyrstu seríuna um helgina og átti alveg frábært kósí með lappann uppi í rúmi í chilli. Veerí nææs!
Ég missti alveg sólarhringinn í rugl, enda komum við heim eitthvað um fjögurleytið eftir tónleikana, en allskonar verkefni og ritgerðir/fyrirlestur, útsetningar og próf eru þessa vikuna, heilmikil læti bara.
Í gær fór ég síðan á masterclass hjá Victor Wooten. Hann var alveg nettur á því bara, ekki eins inspiring eins og Chuck D um daginn samt, en fínn, ágætis tilbreyting að heyra um uuu.. two sided thumb slapping eða.. uuu hvað það heitir (ohh sorry Sigurdór.. híhíh). Ég fékk frían miða síðan á tónleika 8. des. en Marcus Miller ætlar að trylla lýðinn ásamt Berkladýrum. Jamm. Stuð.
:: geimVEIRA:: kl. 02:58:: [+] ::
...