| |
:: Þvaðurveita geimVEIRU :: Forsíða | e-mail | Skoða gestabókina | Skrifa í gestabókina | | |
:: mánudagur, ágúst 22, 2005 :: Ég kláraði alveg síðustu bensíndropana þegar ég vann fram á kvöld á föstudaginn, enda kom ég heim og steinlá fyrir framan sjónvarpið, alveg mygluð og búin á því. Laugardagurinn fór einnig í vinnu, það var ansi mikið að gera en samt leiddist mér einhvern veginn og var í engu stuði. Ég kom við og sótti pizzu enda ekki í neinu stuði til eldamennsku, borðaði hana og steinsofnaði og vaknaði ekki fyrr en kl. hálfellefu um kvöldið. Ég var eftir að fara í sturtu og fullkomlega mygluð og leið að vera að missa af menningarnóttinni og öllusaman. Síðan hitti ég fyrir unga snót í útlandinu sem leiddist ekki síður og úr varð þessi líka frábæra MSN-törn. Sunnudagurinn fór síðan í fullkominn aumingjaskap. Ég hélst ekki vakandi nema 2 tíma í senn, var svo þvílíkt búin á því eitthvað. Ég glápti bara á Arrested Development milli lúra og reyndi að sofa þennan slappleika úr mér, veit nú ekki hvort það tókst samt, er ekkert svakalega mikið á tjúttinu m.v. hvað ég hef sofið og svona.
|
|