| |
:: Þvaðurveita geimVEIRU :: Forsíða | e-mail | Skoða gestabókina | Skrifa í gestabókina | | |
:: mánudagur, ágúst 15, 2005 :: Ég fékk mér svona sáralokuplástra einhverja, enda blæddi enn og aftur úr þessum sárum mínum í morgun. Nú hlýtur þetta að fara að gróa. Annars var ég með ljótuna bara í dag. Fékk komment á hvað ég væri veikluleg og föl eitthvað, heheh, kannski í beinu sambandi við svitakastið sem ég vaknaði í. Eftir vinnu fór ég og kvaddi Söndru mínaá Brennslunni, síðan fór ég og borðaði með vinkonu minni á Sólon. Ég fékk mér tom yum eggjanúðlur með rækjum. Lítið bar á tom yum bragðinu enda rétturinn svo brimsaltur að ég hef ekki vitað annað eins. Ég nennti alls ekki að gera vesen úr þessu enda fólk tímabundið og svona, át þetta bara og drakk fullt af vatni, oh hvað maður á að vita betur... rétturinn hefndi þess heldur betur þegar heim var komið, ég ét ekki þarna í bráð fósjó.
|
|