[::..Allur réttur áskilinn, öll opinber birting og/eða eftirritun í opinberum
fréttamiðlum, þ.m.t. prent-, vef-, sjónvarps- og útvarpsmiðlum, er óheimil án skriflegs
samþykkis höfundar...::]
Í gær fór ég með allt mitt hafurtask og æfði mig svolítið í skólanum, svo fór ég í söngvinnubúðir þar sem var tekinn spuni en að þessu sinni leiklistarspuni. Ég orðin óttalega ryðguð í þessu náði þó að lifa mig það vel inn í atriði að ég flaug á rassinn með miklum tilþrifum og felldi það inn í annars slappt atriði. Sem betur fer var ekki vel mætt ég náði engri tengingu við leiklistargyðjurnar.
Í dag æfði ég fjölhryn og setti í framhaldi af því þetta drasl upp, en við höfðum verið með handskrifað ljósrit sem fór orðið mikið í taugarnar á skrifstofudömunni fyrrverandi. Fyrir þá sem áhuga hafa á að kynna sér fjölhryn (eins og allir hafa að sjálfsögðu) skelli ég þessu hér inn.
:: geimVEIRA:: kl. 22:02:: [+] ::
...