[::..Allur réttur áskilinn, öll opinber birting og/eða eftirritun í opinberum
fréttamiðlum, þ.m.t. prent-, vef-, sjónvarps- og útvarpsmiðlum, er óheimil án skriflegs
samþykkis höfundar...::]
Þmokka- og víðuþablaðuð Það hefur verið fjallað nokkuð um alþjóðlega könnun Durex í fréttum undanfarið, en sem fyrr er algerlega farið framhjá aðalatriðinu þykir mér. Því inn á milli skemmtilegra staðreynda um tíðni og unaðsemdir kynmaka landans var mjög ógnvænleg niðurstaða varðandi smokkanotkun, eða öllu heldur skort á henni. Mér þykir það mun fréttnæmara en að við eigum met í hjálpartækjaeign hversu alvarlegt kæruleysið er í smitvörnum. Samkvæmt könnuninni höfðu 45% stundað óvarið kynlíf með einhverjum án þess að spyrja út í sögu viðkomandi. Síðan eru það nágrannaþjóðirnar sem eru enn verri, hjá Svíum og Dönum er þetta hlutfall 64%, Norðmönnum 58%, Finnum 49%, sem aftur leiðir að því að enn greiðari smitleið er inn í landið, þegar þessi 35% landans fara með norræna samstarfið undir sæng. Hér þar sem aðgengi er mjög gott að smokkum finnst mér þetta alveg svakalegt og greinilegt að mikið vantar upp á fræðslu um HIV og lifrarbólgur, sérdeilis lítið skemmtilegir vírusar þar á ferð, að ekki sé nú minnst á restina af kynsjúkdómunum.
Ég hef ekki heyrt minnst á þessar niðurstöður könnunar Durex í fréttum og lýsi hér með eftir umræðu um þetta. Landlæknisembættið hefði verið sniðugt að benda á þetta, mig grunar að þetta séu niðurstöður nokkuð nærri lagi m.v. samræður mínar t.d. við unga karlmenn um þessi mál (og nei ekki undir neinum kynferðislegum kringumstæðum). Svo virðist sem ungu fólki þyki það, að hafa smokk meðferðis þyki, bera vott um grátlega bjartsýni nú eða þá um að viðkomandi hljóti að vera laus í rásinni, að hittu þeir stelpu sem hefði smokk í veskinu dæmdu þeir hana ekki fallega, og þeim þætti að það myndi líta þannig út fyrir þá ef þeir gengju með smokk að þeir væru aðeins á höttum eftir kynlífi, en um leið myndu sömu einstaklingar þó hiklaust sofa hjá kæmi upp sú staða, þrátt fyrir að smokkur væri ekki með í för.
Þetta viðhorf er svo stórhættulegt og mér þykir bara alveg merkilegt hvað virðist mæld lág smittíðni HIV hér á landi, m.v. kynhegðun landans. Vonandi allavega er það ekki bara vegna þess að enginn mætir í próf. Vonandi er það ekki af því að fólk veður enn í myrkrinu um hverra sjúkdómur þetta er. HIV er sjúkdómur sem leggst á manneskjur óháð kynhneigð og háralit. Þetta finnst mér miklu þarfari áminning en smjattið um hið kitlandi met sem við eigum í titraraeign eða fjölda bólfélaga (sem reyndar fer nú ekki nógu vel með kæruleysinu sýnist mér). Gott mál að segja skemmtilegar fréttir, en mikið hefði verið þarft að nota tækifærið og minna fólk á að það eru skæðar veirur þarna úti. Sko alveg bara VONDAR veirur og allt!
:: geimVEIRA:: kl. 11:08:: [+] ::
...