[::..Allur réttur áskilinn, öll opinber birting og/eða eftirritun í opinberum
fréttamiðlum, þ.m.t. prent-, vef-, sjónvarps- og útvarpsmiðlum, er óheimil án skriflegs
samþykkis höfundar...::]
Tónlist Ég tók þrælskemmtilega æfingu með vini mínum píanistanum á fimmtudaginn, en ég tók mér sumarfrí á föstudaginn var og tók mini-tjúttpakka á fimmtudagskvöldið þegar ég fór á tónleika með Doors tribute bandinu. Þeir voru alveg svakalega flottir strákarnir, Björgvin Frans alveg magnaður sem og bandið í heild. Svo var kjaftatörn fram undir morguninn (andskotinn hitti ömmu sína alveg hreint) og svo var önnur stutt æfing með píanistanum. Ég kíkti aðeins í bæinn á föstudagskvöldið, en á laugardaginn var æfing með gríska bandinu. Sú æfing var ótrúlega skemmtileg, en við fengum aðstöðu í Hljómskálanum. Þangað inn hafði ég aldrei komið fyrr, mjög gaman að sjá þetta, en svo var veðrið svo frábært alveg að við stilltum upp úti og æfðum í 3 tíma í glampandi sólskini og hita.
Svo var farið í útilegu. Grundvallarmistök voru gerð í að reyna að eltast við veðrið og breyta plönunum svo í stað 40 mín keyrslu á upphaflegan áfangastað enduðum við í 6 tíma dauðaleit að söngvænu tjaldstæði á Suðurlandi. Öll möguleg stæði í nánd Hveragerðis voru skoðuð án árangurs. Stefnan var tekin á Haukadalinn en stórkostlega lélegar móttökur af tjaldverði á Geysissvæðinu urðu þess valdandi að engan langaði að dvelja þar lengur en 5 mín. en án þess að nokkurt tilefni væri til var hótað lögreglunni ef við yrðum með læti (en við vorum á engan hátt með læti eða að gefa til kynna að það væri á dagskrá), mjög mjög ömurlegt viðhorf. Mín var orðin illilega pissed og þreytt og langaði ekkert frekar en að fara heim, en að lokum var tjaldað við fossinn Faxa í algjöru myrkri. Svo var grillað og sungið, dansað og tjúttað við útikertaljós. Ágætt m.v. allt og allt, mér tókst samt að offast hressilega um nóttina. Var fullkomlega ósátt við allt og alla og færði allt dót ferðafélagans úr bílnum í tjald því ég var svo mikið á leiðinni heim bara, en ég var þó það gáfuð að ákveða að hugsa málið betur og ákvað að ég yrði bara að hætta þessu rugli hið fyrstasta. Svo ég fékk vinkonu bíllykilinn og sagði henni að passa hann bara því ég væri fullkomlega að eipa enda myndi ég aldrei aka full og hafði aldrei áður látið mér detta það í hug nokkurn tímann. Merkilegt, ég hef sko aldrei fyrr né síðar lent í svona spælingarkasti í glasi. Greinilega alveg búin á því eftir svona pirring og steypu, en svo bara skiptum við um umhverfi og tókum smá trúnó til að hressa okkur [mig] við, sem virkaði mjög vel. Það var líka mjög ljúft að koma heim í gær. Ég eldaði mér fajitas og á líka svoleiðis tilbúið í kvöldmatinn í kvöld, liggalái!
Mánudagsblúsnum var bjargað þegar ég frétti af því að æfing með nýju sniði yrði á morgun og stefnt að því að borða saman. Ég hlakka mikið til. Svo er bara farið að styttast í skólann. Úff ég þarf að fara að finna tónheyrnarbækurnar mínar og æfa mig. Það er búin að vera svo mikil tónlist á mér þessa dagana, alveg frábært! Tónlist er sálarfæði.
Er ekki hressleiki annars bara?
:: geimVEIRA:: kl. 10:27:: [+] ::
...