[::..Allur réttur áskilinn, öll opinber birting og/eða eftirritun í opinberum
fréttamiðlum, þ.m.t. prent-, vef-, sjónvarps- og útvarpsmiðlum, er óheimil án skriflegs
samþykkis höfundar...::]
Hvernig fóru pantanirnar? "Pant hafa gaman á æfingu í kvöld!" - æfingin á fimmtudaginn var ekki að slá í gegn, ég var alveg í ruglinu á egginu og langaði bara ekki mikið að syngja.
"Pant hafa gaman á æfingu á morgun!" - æfingin sem átti að vera í dag gufaði bara upp í dissi.
"Pant hafa gaman um helgina á giggi og tjútti!" - Það er ennþá von.
"Pant ekki fá kvefpestina sem er að reyna að fella mig!" - *hóst hóst - helvítis veirur!*
"Pant ekki offa alla sem ég þekki!" - Ætli yfirdrullun og general eip hér að neðan klári það ekki bara nett fyrir mig... ekkert eins offandi og eip.
"Pant ekki missa coolið"... Já.. ég er gersamlega búin að missa kúlið í kvöld.
Vinur minn hringdi þó í mig og talaði mig úr dramamode yfir í sæmilegt skap á ný. Ekki veitti af. Ég er dramadrottning dauðans þessa dagana.
Segið margt um mig - en aldrei láta ykkur detta í hug að ég sé ekki dramadrottning!
:: geimVEIRA:: kl. 04:59:: [+] ::
...