| |
:: Þvaðurveita geimVEIRU :: Forsíða | e-mail | Skoða gestabókina | Skrifa í gestabókina | | |
:: sunnudagur, ágúst 08, 2004 :: Ég er á svona trippi þar sem allt sem ég geri er glatað. Var á æfingu í þessu gríska dóti og var alveg ekki með á nótunum, enda var ég að hrista egg út í loftið eitthvað og var ekki að finna mig í þessu - söng eitthvað smá sem var allt í lagi. Ég er ekki slagverksdýr þótt ég hafi gaman af þessu er leiðinlegt að vera dragbítur þegar maður er ekki að meika að grúva í 15/8. Ég er alveg alvarlega fólkið í kvöld. Er með allskonar tónlistarlega mórala. Þarf illilega á því að halda að komast í að spila tónlist að mínu skapi. Þarf að rifja upp efni síðasta vetrar, enda gekk mér ekki nógu vel í hljómfræðinni.
|
|