[::..Allur réttur áskilinn, öll opinber birting og/eða eftirritun í opinberum
fréttamiðlum, þ.m.t. prent-, vef-, sjónvarps- og útvarpsmiðlum, er óheimil án skriflegs
samþykkis höfundar...::]
Fuckwits Það er eitt sem mér finnst svo lélegt. Ég sem einhleypt einbirni og þokkalega mikill loner fæ stundum allskyns freistandi tilboð sem ansi oft hljóða upp á 2 fyrir 1. Þetta er gott og blessað framtak en þar sem ég hef ekki vinafjöld á lausu að staðaldri, foreldra úti á landi, er singull og á ekki systkin þá finnst mér óttalega fúlt að fá ekki að njóta fríðindanna nema að draga með mér einhverja sál. Nú í dag datt mér í hug þar sem ég fæ afslátt í formi 2 fyrir 1 í Bláa Lónið að hringja og spyrja hvort ég fengi ekki bara helmingsafslátt ef ég kæmi í minni einsemd. Það var nú aldeilis ekki. Ég fæ ekki notið fríðindanna nema ég dragi einhvern með mér. Ömurlegt. Satt að segja er svona niðurlægjandi. Af hverju ætti það nokkru að skipta fyrir fyrirtæki út í bæ hvort þeir fá kannski 5 einhleypa aðila inn á 50% afslætti sem þá skyldu eftir einhverja innkomu í kassann hjá þeim frekar en að fá 2 pör fólks á sama afslætti (sem skilar minni innkomu hvernig sem horft er á það). Það er ótal oft sem ég myndi hafa nýtt mér svona díla, enda samið um þá fyrir mína hönd sem félaga í Vörðunni, VR, FÍB, handhafa VISA-gullkorts og hvað það nú er allt saman. Þegar ég sem viðskiptavinur vill njóta fríðindanna (sem ég er náttúrulega að borga fyrir eftir allt saman) þá allt í einu má ég ekki lengur vera einstaklingur. Afskaplega pirrandi. Svo ekki sé meira sagt.