[::..Allur réttur áskilinn, öll opinber birting og/eða eftirritun í opinberum
fréttamiðlum, þ.m.t. prent-, vef-, sjónvarps- og útvarpsmiðlum, er óheimil án skriflegs
samþykkis höfundar...::]
Eftir 6 tíma ferðalag með smá stoppum og stuttri heimsókn kom ég við annan mann (konu) á Siglufjörð. Þar beið okkar hópur úr skólanum sérdeilis hress og var strax farið að æfa nokkur grísk lög sem hópurinn hafði að stórum hluta verið búinn að æfa saman. Þar sem ég var ekkert inni í þeim pakka reyndi ég að bulla eitthvað með eggjahristunni minni. Svo eftir rennslið var farið að lúlla enda var æfing kl. 9 í gærmorgun.
Kennari okkar á námskeiðinu sæti Grikkinn hann Georgios var svona skemmtilega easy á því, vildi fá improviseringar og hafa allt opið, svo þótt ég væri alveg úti að aka gat ég samt verið með ólíkt því sem ég hafði óttast. Ég endaði með að syngja og improvisera auk þess að hrista eggið með miklum tilþrifum. Eftir æfingu í gær fengum við okkur stórgóða pizzu á Kaffi Torgi og skelltum okkur á tónleika á Síldarminjasafninu. Þar er uppsetning með tveimur bátum og er svona bryggjulíki þar með gamaldags ljósastaurum. Tónlistarmennirnir fluttu úr einum bátnum og var setið í stólum á bryggjunni og á bríkum og brúnum hins bátsins, síðan var dælt reyk í salinn og úr varð mikil bryggjustemming. Heyrði ég þarna fleiri gamla slagara en ég kærði mig um en samt alveg fínt. Svo var tekinn bjór og annar og annar. Ótrúlegur hressleiki samt í morgun verð ég að segja, í það minnsta var ég ferskari en í gærmorgun. Hressi Grikkinn tók sig til og reddaði okkur þremur lögum, öllum með grískum textum fyrir yours truly, svo fékk ég hálftíma einkakennslu í grísku. Svo var ákveðið að við myndum hafa opna æfingu en mér tókst að syngja eitt lag á grísku skítsæmilega og steikja gersamlega hin tvö uppi á sviði í steikjandi sól og hita fyrir framan nokkrar hræður á torginu, alls tókum við nú 7 lög þar af eitt frumsamið af Georgios, en það lag þótti mér takast best. Svo grilluðum við en ég varð svo agalega þreytt eftir matinn að ég gerði tilraun til að leggja mig. Það tókst nú ekki betur en það að ég lá í 15 og þegar ég var komin í stresskast ákvað ég að fara bara í tölvuna og fikta, en flestir krakkarnir skelltu sér á tónleika.
:: geimVEIRA:: kl. 23:34:: [+] ::
...