[::..Allur réttur áskilinn, öll opinber birting og/eða eftirritun í opinberum
fréttamiðlum, þ.m.t. prent-, vef-, sjónvarps- og útvarpsmiðlum, er óheimil án skriflegs
samþykkis höfundar...::]
Exhale Ég hef ekkert verið að blogga, treysti mér svona ekki alveg til þess án þess að taka svo mikla fyrirlestra um flaky karaktera og sjálfhverft fólk sem misnotar almennilegheit skammlaust, en þar sem allir eru sammála um að svoleiðis fólk sé leiðinlegt þá er til svo lítils að útskýra það eitthvað, segir sig sjálft. Í stuttu máli lét ég skemmileggja alltof mikið af helginni fyrir mér af svoleiðis flaky fólki. Á föstudaginn fékk ég samt frábæran grillgest sem reddaði algerlega deginum, já og svo annan til í desert. Ég er búin að horfa á hluta af Blue Man Group DVD disknum með þeim sem var mjög gaman. Helgin fór að öðru leyti í að láta fara illa með tíma minn og særa mig eiginlega bara - fúlt. Það sem ég lærði af þessu er samt ágætt: Hér eftir mun þjálfuð upp diva, nú verður hert upp bakbein og beinið í nefinu skerpt - andskotinn að maður láti vaða yfir sig, hell no! No more miss nice virus.
Ég svaf með opinn glugga og er búin að að ná mér í þennan fína raspihósta sem er crucial að losa sig við fyrir helgina en þá er stefnan tekin á útilegu. Það var svo gaman síðast að maður verður að tjúna niður væntingarnar fyrir þessa, varla hægt að ætlast til þess að fá aftur frábært veður og bara allan pakkann.
Ég keypti mér psychadelic borð með marglitum doppum um daginn (sem passar svo vel undir magnarann að þetta verður bara magnaraborðið mitt).
Ég fer út að borða annað kvöld. Ég steingleymdi að fara með föt í hreinsun arg, what to do, what to do? Ég
Ég eldaði mér tofubullrétt með hrísgrjónum sem ég sauð í hrísgrjónapotti sem ég keypti á slikk sniðug græja, hann heppnaðist ágætlega. Svo var brainstormsession mikið frameftir öllu og spáð í tónlist, ágætis pælingar í gangi, gaman að sjá hvernig það æxlast.
:: geimVEIRA:: kl. 13:01:: [+] ::
...