[::..Allur réttur áskilinn, öll opinber birting og/eða eftirritun í opinberum
fréttamiðlum, þ.m.t. prent-, vef-, sjónvarps- og útvarpsmiðlum, er óheimil án skriflegs
samþykkis höfundar...::]
You gotta pick yo afro daddy - cause it's flat on one side! Dagurinn sem byrjaði svona líka óþægilegur endaði ljúfur með endemum. Ég fór í skólann með herkjum og lifði það af, ég var svo óendanlega fegin að prófum sem okkur var hótað var frestað, síðan náði ég að ljúka smá tölvufiffi sem hjálpar bekkjarfélögunum, svo maður varð í það minnsta til gagns. Tónleikar Ívars voru flottir, á eftir voru veitingar og síðan fórum við nokkur á kaffihús sem var svo innilega akkúrat það sem mig vantaði, miklar pælingar á köflum og hollar fyrir mig, það var mér mjög hollt að heyra að fleiri hafa verið hálf rótlausir í skólanum í vetur, einnig fékk ég tækjafríkið upplýsingar um tækniatriði sem mig hefur alltaf langað að vita og er óendanlega glöð að heyra að er gerlegt.... næsta brjáluðu innkaup geimVEIRU (ef vel gengur að díla við amerískar heimasíður) verða þessi: MBox. En þetta er snilldargræja frá Digidesign (ProTools anyone?) og mun vera það sem vantar með pjakknum til að gera skemmtilega hluti, en þetta er formagnari sagði félagi minn mér í gær, sem skilar yfir gögnum yfir á USB einhvers konar ProTools dæmi sýnist mér fylgja með en ég þekki þetta nú ekki mikið er bara enn alveg heilluð eftir námskeiðið hjá Gunnari Smára í fyrra, þetta gæti ég hugsað mér að fikta við í allt sumar vúhúú! Sérlega heppilegt að my parental unit eru á leið til USA. Allar ábendingar um hvernig best er að snúa sér í svona innkaupum í USA eru vel þegnar.