| |
:: Þvaðurveita geimVEIRU :: Forsíða | e-mail | Skoða gestabókina | Skrifa í gestabókina | | |
:: þriðjudagur, mars 16, 2004 :: Jæja, þessi mánudagur er loksins búinn. Alveg sérdeilis óvelkominn þessi dagur hjá manni oft, sérstaklega var lítil stemning fyrir honum í dag. Ég hefði flestallt viljað framkvæma annað en fara í vinnuna. Ég skellti mér á bebop tónleika í gær - þeir voru ljúfir bara - var fegin að hafa drifið mig eins og alltaf, hollt fyrir eyrun að tékka á þessu. Ég fór og gerði mig að fífli í tónheyrn og síðan í hljómfræði, alltaf gaman að því (úff) síðan kíkti ég á Lost in Translation með vinkonu minni, skemmti mér mjög vel, en hef náttúrulega ekkert undirbúið mig fyrir söngtímann, en það verður bara að hafa það - þessa vikuna mun ég gera mig að fífli - þetta er allt viljandi (eða þannig).
|
|