[::..Allur réttur áskilinn, öll opinber birting og/eða eftirritun í opinberum
fréttamiðlum, þ.m.t. prent-, vef-, sjónvarps- og útvarpsmiðlum, er óheimil án skriflegs
samþykkis höfundar...::]
Jazzhátíð dagur 2 (sem ég hafði efni á): Ómar Guðjónsson og co voru mjög flottir á föstudaginn var. Sérstaklega féll ég þó fyrir Helga trommara, ótrúlega flottur trommari, setti mikinn svip á þetta allt saman, ég sá ekki eftir því að hafa þessa tónleika eina af þessum þremur sem ég fer á í ár. Samt slysaðist ég óvart til að horfa á auglýsingaborðann. En ég lifði það alveg af. Fékk mér flöskubjór sem kostaði 700 kall - lifði það nú líka af en er á því að spyrja alltaf um verð á öllu áður en ég fæ nótuna til undirskriftar. Var að spá í að kaupa diskinn en ákvað að bíða aðeins með það. Svoldið fyndið að það voru ótrúlega margir í salnum svona einhvernveginn í gömlukarlafélaginu, á ákveðnu svæði í salnum a.m.k. var meðalmaðurinn líklegast 64 ára og karlkyns. Eins gott að maður mætti á svæðið til að lagfæra meðalkúrvuna. Ég fer pottþétt aftur á tónleika með þeim þessum.
Jazzhátíð dagur 3 (af þeim sem ég hafði efni á): Fór á jazzbrunchinn með Ragnheiði Gröndal og co. Þetta voru greinilega með best sóttu tónleikunum, en þó virtist ekki haa verið gert ráð fyrir því, enda verið að bæta við borðum og endurskipuleggja framan af þannig að tónleikahald tafðist nokkuð. Það var mjög ljúft og góður fílíngur, Ragnheiður er með algjöra hunangsrödd og náttúrulega algjör snúlla bara. Eitthvað rugl var þó með að manni var seldur miði á brunch sem átti að vera hlaðborð en maður fékk svo fyrirfram skammtaðan (ekki sérlega vel útilátinn) mat á disk, sem hentar ekkert endilega öllum - ég t.d. var EKKI spennt fyrir að fá brytjaðar vínarpylsur og bakaðar baunir í slummu á diskinn minn þótt hitt hafi bragðast ágætlega. Þess má einnig geta að maturinn var líka alls ekki "brunch" heldur bara english breakfast. Með fylgdi glas af appelsínusafa - punktur. Þokkalega klént að mínu mati, ég varð södd en t.d. karlar sem áttu von á góðu í hlaðborðinu sem þeir borguðu fyrir hefðu kannski orðið fyrir enn meiri vonbrigðum. Ég varð síðan kaffiþyrst og fékk þá það slappasta kaffi latte ever (sem kom mér rosalega á óvart enda Kaffibrennslan við hliðina á með hið allrabestasta kaffi) borðfélagi minn sagði sitt kaffi vera vont. Ég átti von á himneskum veigum, enda þarf að mínu mati bolli af hverju sem er að vera frábær ef hann er seldur á bloody 380,- krónur, erfitt var að innheimta vatnsglasið sem ég pantaði með, en það hafðist á endanum.
Tónlistin var frábær, en Borgin fær mínus fyrir eftirfarandi: Einhver sími á vegum Borgarinnar hringdi í tíma og ótíma oft í lengri lengri tíma, svo úr varð töluverð truflun enda mjög ljúf og róleg tónlist oft, mér finnst nú verða að passa upp á svona lagað, í eldhúsinu virtist vera útvarp í gangi og heyrðist í því ásamt glamri og ýmsum látum fram í sal allavega þar sem ég sat, en svo var verið að færa inn og dúka upp borð eftir að tónleikarnir áttu að hefjast þannig að fólk sem kom tímanlega (eins og t.d. minn hópur gerði til að fá borð) mátti sitja á ömurlegum stað þar sem maður sá ekki neitt, en fólk sem kom of seint fékk hin bestu borð. Borgin fær plús fyrir að vera falleg og leyfa ekki ljóta auglýsingaborðann upp á vegg. Ragnheiður var alveg flottust, stemmingin varð hinsvegar aldrei alveg svona brunch og nettur fílíngur eins og ég hélt að ætti að vera. Hefði verið alveg ágætt að fá að versla sér mat bara eftir eigin höfði fyrst þetta var svo ekkert hlaðborð. Ég er bara spæld að láta hafa af mér pening fyrir svikna vöru, sérstaklega þar sem það voru fullt af fólki sem hefðu viljað koma að sjá Ragnheiði en fannst þetta of svona grand pakki að hafa brunch og allt með... frábær pæling en ég hefði frekar viljað sjá Ragnheiði við annað tækifæri eftir á að hyggja. Já, þ.e.a.s. tvisvar fyrir þennan pening. Ég hefði meira að segja getað fengið gott latte í ofanálag.
Live and learn I guess.
Kringlan, Smáralind og snúllerí Ég fór eftir hádegistónleikana í Kringluna til að gera lokatilraun til að finna mér eitthvað fyrir innlagsnótu sem ég hef átt í verslun síðan um síðustu jól. Aldrei þessu vant tókst mér að finna eitthvað og trallaði út með skyrtu og bol. Reyndar fann ég mér svo annan bol líka svo ég var mjög sátt. Slysaðist til að skoða einhver DVD-tilboð í Skífunni og datt niður á eina af mínum uppáhaldsmyndum Jerry Maguire á þúsundkall, svo ég varð nú að kaupa hana. Þá kom kaffiþorstinn frá því fyrr um daginn aftur og ég ákvað að tékka á latte á Tárinu hitti frænku mína og kastaði kveðju. Svo fann ég frábærlega flottar jólastjörnur á tilboði með potti á kr. 1.290,- gasalega jólalegt. Ég ákvað svo að bruna inn í Kópavog með gleraugun mín í yfirhalningu og freistaðist til að kíkja í Benetton og fann þessa líka svakasætu jólapeysu á nýfædda dóttur vinkonu minnar. Ég keypti hana og dreif mig í heimsókn, svo endaði ég bara þar í mat og kósí. Gasalega gaman að sjá svona nýfæddan trítil - er ekki frá því að ég hafi barasta fundið þessa ungbarnalykt margumtöluðu, en þetta er alveg í 2. eða 3. skipti sem ég kem nálægt svona ungu ungabarni ever. Já svo fékk ég líka að klappa ketti. Þetta varð hinn mesti snúlludagur í áraraðir.
Merkilegt Í dag fór ég barasta á æfingu með píanóleikara, hún gekk bara mjög vel þetta er allt að neglast niður og farið að liggja flott. Það er ekki orðið 100% en með okkur verður kannski einn sá eftirminnilegasti tónlistarmaður frá því ég var lítil. Það var þegar ég var 7 ára að Sinfóníuhljómsveit Íslands kom og hélt tónleika í sal grunnskólans míns og maður varð mjög hissa og fannst bara gaman að þessu, en sérstaklega þó að einum í hópnum, en hann gantaðist svo mikið við krakkana og þetta situr enn í minningunni hvað hann var skemmtilegur, jú og líka að á sömu tónleika kom nýr bekkjarfélagi í hópinn sem ég síðan kynntist og varð vinkona mín í 2 ár. Þessi sniðugi þarna var kontrabassaleikarinn, en píanóleikarinn sem tilvonandi afmælisbarnið fékk með mér þekkir hann. Þess vegna væri alveg frábært að fá að koma fram með honum 22 árum eftir mína fyrstu og minnisstæðustu tónleika. Auðvitað líka bara brill ef maður fengi bassa með í lögin. Hitt er samt meira gaman.
:: geimVEIRA:: kl. 01:35:: [+] ::
...