[::..Allur réttur áskilinn, öll opinber birting og/eða eftirritun í opinberum
fréttamiðlum, þ.m.t. prent-, vef-, sjónvarps- og útvarpsmiðlum, er óheimil án skriflegs
samþykkis höfundar...::]
Alveg í hunk Ég var að horfa á Doggie Fizzle Televizzle á MTV og er þokkalega sátt - hann má eiga það hundurinn að vera fyndinn... helvíti góðir sketsar þarna, eins og maðurinn fór í taugarnar á mér hefur hann húmor fyrir sjálfum sér svo hann fær kredit fyrir það.
Ég var hjá læknarakonunni í dag og fékk að vita að ég er sem betur fer með exem en ekki psoriasis, svo ég er ekkert lítið sátt, þetta var fín yfirhalning, lét taka fæðingarbletti af mér líka svo nú get ég loksins farið í dulargerfi. Ég meiddi mig fullt alveg þótt væri deyft, en það var allt í lagi samt, gott bara að vera búinn að þessu.
Allar konur - ok já og hommar líka, sem hafa tekið eftir manninum vinstra megin við Kylie í Slow-vídeóinu rétt upp hönd! Pant eig'ann! Flottastur sko. Nokkuð flott alltaf vídeóin hjá henni, maður hefur heyrt að hún þyki flott í svona hommakúlturnum, skil það betur núna allavega þetta vídeó er eins og konfektmoli - makes my mouth water anyhow. Mér finnst skemmtilegt fyrst að lagið á annað borð er ansi líkt "Come together" með Conscience, önnur melódía - en annars sömu hljóð, sound og stemming, að það skuli notað svipað concept í vídeóið líka en í því var einmitt einn söngvari karlkyns í hóp af konum sem sátu í kringum hann og allir naktir. Var svona hlý björt lýsing og stemming - einstaklega einfalt var svona þokki yfir því - ekki samt endilega kynþokki þótt allir virtust naktir. Í hennar vídeói er hún fókusinn innan um hóp af fáránlega fallegum karlmannslíkömum í sólskini og chillstemmingu, þeir eru að vísu eru í baðfötum en það eru smá tilburðir í lokin... menn farnir að smeigja sér úr svona smá, stelpan heldur þokkanum uppi - þeir krydda þetta. Gaman að því að sjá einu sinni karlmenn í tónlistarmyndbandi bara sem skraut - Kylie fær plús fyrir þetta.
Já ok, er augljóst að ég var að horfa á MTV? Well annað sjónvarpsgláp innihélt hvern fagurskaplinginn á fætur öðrum. Það voru allir voðalega fallegir í sjónvarpinu mínu í kvöld. T.d. þessi sem heitir Simon Baker: