[::..Allur réttur áskilinn, öll opinber birting og/eða eftirritun í opinberum
fréttamiðlum, þ.m.t. prent-, vef-, sjónvarps- og útvarpsmiðlum, er óheimil án skriflegs
samþykkis höfundar...::]
Hver er pælingin með svona anti-snobb? Ég bara hef aldrei náð þessu. Núna í sjónvarpinu er t.d. einhver náungi sem mætir órakaður, með hárið úfið og í krumpuðum og götóttum Che bol sem fulltrúi karlkyns feminista. Það má vel vera að svona lagað eigi mikið á pallborðið hjá áveðnum týpum fólks, en fyrir mér - kallið mig shallow Hal or whatever, er þetta lítilsvirðing við áhorfendur. Þetta truflar mig svo mikið að nokkurn veginn allt sem ég meðtek eftir viðtalið, vel má vera að hann hafi sagt eitthvað gott og blessað - beats me, er að það var náungi í sjónvarpinu sem fannst það allt í lagi að mæta fyrir alþjóð á matartímanum eins og nýstaðinn upp úr koju eftir að hafa sofið í fötunum í 2-3 daga.
Ekki það að það sé bráðnauðsynlegt að allir séu guðdómlega fallegir sem fram koma í sjónvarpi, vatnsgreiddir og í jakkafötum, en mér finnst lágmark að fólk sýni þó þá kurteisi að vera svona atvinnuviðtalshæfir í útliti þegar þeir koma fram í sjónvarpi, svona messuhæfir með ömmu sinni eða þar um bil. Ég er enn svo gamaldags að mér finnst fólk sem kemur fram fyrir hönd einhvers, hvort sem um er að ræða fyrirtæki eða málstað eða hvað það annað sem fólk mætir í viðtöl fyrir, þá þurfi það að hafa í huga að um leið er það orðið andlit út á við og jafnvel fyrirmyndir. Staðalímyndir eru kannski ljótt fyrirbæri, en að leggja til svona ímynd sem byggingarkubb staðalímyndar, þá var karlkyns feministum ekki gerður greiði þarna. Mér finnst ekki raunhæft þegar menn sem þykjast hafa eitthvað fram að færa vitsmunalega telja það málstað sínum til framdráttar að draga frá jafnmörg stig útlitslega og þeir leggja fram vitsmunalega. Ég næ bara ekki þessari pælingu, hvers vegna ekki að nota allar fallbyssurnar? Ég þori að veðja að þótt Albert hafi sést með hárið upp í loft, hefði meira að segja Einstein greitt sér áður en hann hefði farið í sjónvarpið. Hann hefði allavega andskotann ekki mætt í götóttum krumpuðum fötum.
:: geimVEIRA:: kl. 18:51:: [+] ::
...