[::..Allur réttur áskilinn, öll opinber birting og/eða eftirritun í opinberum
fréttamiðlum, þ.m.t. prent-, vef-, sjónvarps- og útvarpsmiðlum, er óheimil án skriflegs
samþykkis höfundar...::]
Víst er vísað á hjálparstofnanir Vegna umræðu um hvort félagsþjónustan í Reykjavík vísi fólki á hjálparstofnanir, þá þykir mér rétt að geta þess að vinkona mín þurfti að vera upp á það batterí komin um tíma og henni var ítrekað vísað á mæðrastyrksnefnd og einnig sagt hvernig hún bæri sig til að fá aðstoð frá kirkjunni.
Þar sem hinsvegar ég dreg það stórlega í efa að hún hafi verið fórnarlamb aðstæðna, hún málaði sig sjálf út í horn með endalaust röngum ákvörðunum sem hver heilvita maður hefði séð að myndu leiða til erfiðra fjárhagsaðstæðna, taldi ég hana ekki í hóp raunverulega bágstaddra. Ég heyrði þá sögur hvernig hún gat ekki fengið aðstoð, hinsvegar vinkona hennar sem var dópisti sem þá var við það að missa frá sér börnin (hefur nú mistt þau) hafði íbúð og framfærslu á vegum borgarinnar. Þessi dópisti framleigði henni síðan herbergi í þeirri íbúð og bjó hún við þessar aðstæður í marga mánuði, með tilheyrandi umgang vafasams liðs, en þá var biðlisti eftir félagslegri íbúð um 12-13 mánuðir. Þar sem þessar aðstæður eru erfiðar, finnur maður auðvitað til með fólki í svona aðstöðu, hinsvegar eru ólíkar ástæður fyrir svonalöguðu. Þessi vinkona mín t.d. hafði í sinni heimabyggð haft húsnæði á eigin vegum og vinnu, því nokkuð augljóst fyrir utanaðkomandi að hennar val um að hanga upp á kerfið hér var út í hött. Ég sem skattgreiðandi fæ óbragð í munninn að sjá einhverja dópista blóðmjólka kerfið og hugsa síðan ekki einu sinni um börnin sín, ég hef þekkt til heilu fjölskyldnanna sem unnu svart og mjólkuðu bætur úr kerfinu og fluttu sig til þegar stefnuvottar fóru að banka upp á. Það er þegar tekið er hart á svona liði sem getur unnið en nennir ekki, grefur sér gryfjur með óæskilegri framkomu trekk í trekk á vinnustöðum þar til enginn vill það í vinnu, liði sem í félagslegu húsnæði dirfist að græða með því að framleigja herbergi út, að hægt verður að hreinsa þetta kerfi og láta fólk sem virkilega og raunverulega er í neyð og er fátækt hafa það sem það á skilið. Ég hef horft upp á fólk utan af landi verða leitt á vinnunni sinni þar, taka sig upp með börnin og flytja bara í annað sveitarfélag án þess að hafa þar vinnu eða nokkrar aðstæður þar bjóði upp á betra líf... svo er bara mætt til félagsráðgjafa og sveitarfélagið þarf að redda þeim.
Ég held að það þurfi að taka alvarlega í rassgatið á þessum útgerðum, sem virðast endalaust getað dömpað lægðum í eigin rekstri á sveitarfélögin, þegar þær segja fiskvinnslufólki umsvifalaust upp þegar ekki fiskast þá vikuna. Mikið væri nú gaman að reka verslun þar sem maður gæti bara rekið fólk þegar lítið væri að gera og ráðið fólk bara aftur í kringum ný VISA tímabil og mánaðarmót. Ég mun aldrei skilja hvernig þetta hefur liðist í öll þessi ár. Maður skilur vel það fólk sem vill betra líf en að búa við endalausar uppsagnir yfir höfði sér, ég held að ef tekið væri á þessu myndi léttast töluvert á félagslega kerfinu, enda margir sem hrúgast inn í það kerfi (oft til Reykjavíkur utan af landi án þess að langa neitt til að búa í borginni) við búferlaflutninga í leit að betra lífi, margt fólkið finnur ekkert betra á höfuðborgarsvæðinu... finnst mér þetta sanngjarnt? Nei. Finnst mér sanngjarnt að ég þurfi að borga brúsann í mínu útsvari? Ó nei.
Rotið kerfi.
:: geimVEIRA:: kl. 14:36:: [+] ::
...