[::..Allur réttur áskilinn, öll opinber birting og/eða eftirritun í opinberum
fréttamiðlum, þ.m.t. prent-, vef-, sjónvarps- og útvarpsmiðlum, er óheimil án skriflegs
samþykkis höfundar...::]
Sniðugt Ég kíkti á Dömustaði og fann þar tengil á frábært blogg hjá þeim Gísla og Loga úti í Riga. Gaman að lesa þetta. Gaman að vaka svo lengi að geisparnir manns eru farnir að geispa. Eða nei annars, það er ekkert rosalega gaman. Ok, kannski smávegis gaman en allavega ekki gáfulegt.
Ég verð að tjá mig samt um förðunina hennar Birgittu.... af því að þetta trix með að lýsa innst með hvítu starpowder mest áberandi fyrir 3 árum og þótt það sé í góðu gildi, sem trick til að "opna augun upp" við og við þá er þetta einhæft look til lengdar. Ég spái svoldið í förðun og hef aldrei séð hana öðruvísi en með svona yfirlýsingu á augunum einhvernveginn. Þetta er svo sæt stelpa, mér þætti gaman að sjá hana nota farða til að breyta oftar um útlit. Þetta er svoldið eins og hún hafi fengið þessi ráð frá einhverri einstrengingslegri förðunardömu sem heldur að brún augu séu of dökk, eða eitthvað, en hún er með stór falleg augu og myndi bera flest "look" í förðun mjög vel.
Mig er, sem förðunarsjúkling, farið að langa alvarlega til að sjá hana með svona almennilega dökka förðun til tilbreytingar, kohl í augnhvarmana 'n all... hún yrði óþekkjanleg, en samt mjög flott stelpan. Ó já.
Jæja, nóg af röfli frá mér.
Góða nótt!
:: geimVEIRA:: kl. 02:23:: [+] ::
...