[::..Allur réttur áskilinn, öll opinber birting og/eða eftirritun í opinberum
fréttamiðlum, þ.m.t. prent-, vef-, sjónvarps- og útvarpsmiðlum, er óheimil án skriflegs
samþykkis höfundar...::]
Man ekki neitt, get ekki neitt, fatta ekki neitt Eftir það sem ég þó hef lagt í hljómfræðilærdóm í vetur þá finnst mér ég ekki kunna neitt neitt. Ég er að fara í skriflega vorprófið á morgun og er búin vera að læra í dag. Ég get ekki fyrir mitt litla líf fundið lógíkina í ákveðnum atriðum => ég get ekki munað þær upplýsingar sem þarf til að laglínugreina. Þetta er allt morandi í reglum (sem er gott) en með ekki færri undantekningum (sem er ekki gott). Allur svona páfagaukalærdómur hefur alltaf vafist fyrir mér, síðan ég lærði óreglulegar enskar sagnir þá hef ég ekki meikað svona - urr! Þar sem það sem lógíkin nær utanum fleytir manni yfir 70% af þessu, fer líka alveg með mig að hafi maður villu í þessu utantekningadæmi (sem páfagaukslærdóminn þarf til að muna), þá fær maður vitlaust fyrir allt. Svo ég er vonlítil um að fá nokkra punkta fyrir þennan lið prófs. Þar sem ég er alveg hætt að skilja þetta ætla ég að gera mitt besta til að hreinlega muna þetta út í loftið - eins mikið og ég á bágt með það - og vona að þótt það hverfi þá um leið úr hausnum á mér aftur, að ég fái lógíska nálgun í þetta þegar/ef ég kemst áfram í faginu. Það er kaldhæðnislegt að það sem vefst mest fyrir mér núna kallast "spennur" og "nálganir" ... þar sem ég er mjög spennt út af þessu prófi og er hrædd um að ég bara nálgist það að ná því.
Til að bæta gráu ofan á svart er annað ferlegt próf á morgun, í tónheyrn, en ég er ekkert sérstaklega sterk í henni. Já og svo á ég víst að fá að vita með starfið, sem ég fór í viðtölin tvö út af, á morgun líka. Og svo í kvöld frétti ég að afi minn sem er 82 ára virðist hafa fengið smávægilega heilablæðningu í nótt, hann er svo mikill nagli að hann vill ekki sjá að fara til læknis, var máttlaus í annarri hendinni, var reyndar bara að fatta það í dag þegar kom til hans fólk, að hann getur ekki sagt "s" og ekki "r", en vildi alls ekki láta gera neitt úr þessu, vildi bara skreppa út í Rúmfatalager til að fá mýkri kodda, því hann var svo aumur í höfðinu (!). Svona karlar sko! Það er búið að fara til hans, þ.á.m. hjúkka í fjölskyldunni, og hann er alveg með fulde fem svo hann verður bara að ráða þessu blessaður. Ég held að hann muni stræka á að fara öðruvísi en dauður í sjúkrabíl allavega, því það fyndist honum svoddan aumingjaskapur. En auðvitað hefur maður áhyggjur af þessu, hinsvegar mun verða fylgst vel með honum og svona, það stóð til að hann færi til læknis í vikunni, enda þótti tilgangslaust með öllu að drusla honum snarhjart- og bakveikum í nokkurra klukkutíma bið á einhverri læknavakt úti í rassgati, til þess eins að láta segja sér að hann væri með máttleysi öðrum megin að öllum líkindum vegna heilablæðningar, frænka mín hjúkkan hafði það þó í gegn að haft yrði samband við heimilislækninn hans, sem honum hefur líklegast þótt bara bölvuð vitleysa. "Þetta er bara elli!" segir hann.
Talandi um elli, þá varð hann Eiki þrítugur í dag! Til hamingju með afmælið!
:: geimVEIRA:: kl. 23:20:: [+] ::
...