[::..Allur réttur áskilinn, öll opinber birting og/eða eftirritun í opinberum
fréttamiðlum, þ.m.t. prent-, vef-, sjónvarps- og útvarpsmiðlum, er óheimil án skriflegs
samþykkis höfundar...::]
Good charmathingy Ég er eitthvað orðlaus þessa dagana. Ég er búin að sofa heilan helling en er samt þreytt. Fór á föstudaginn í krabbameinsskoðun og það gekk eins og vanalega ekkert svakavel, gæti þurft að fara aftur (en það hefur alltaf verið sagt við mig, en ég ekki þurft að fara aftur), sem betur fer er ég ekkert að farast að þurfa að fara í svonalagað, frekar en til tannlæknis, en samt nennir maður nú ekki oftar en maður þarf náttúrulega oj oj. Ég er heldur ekki hrædd við sprautur eða að sjá blóð, ég horfi alltaf á mér finnst þetta svo stórmerkilegt allt saman. Sem minnir mig enn og aftur á að hvetja alla til að gefa blóð!
Á föstudagskvöldið bauð síðan fyrrverandi vinnustaðurinn út að borða (goodbye/welcoming dinner). Fékk alveg súpermat á La Primavera og rosafína þjónustu. Þetta var mjög vel heppnað kvöld bara, í gær var ég samt ekki í miklu stuði til neins, en náði að sofa bara fullt sem var ágætt. Ég hef svona í og með (kannski of mikið) stílað upp á að hafa tíma á daginn til að vinna öllu sem ég hef ekki verið nógu dugleg með í skólanum.... í síðasta söngtíma var allt í einu breytt slatta af forsendum sem upp höfðu verið gefnar til stigsprófs, en þar sem ég hef verið með hálsvesen undanfarið, hef ég ekki mikið sinnt stigsprófsmálum fyrir utan að hafa þó verið komin með gömlu forsendurnar loksins á hreint og ætlaði ég að nota mánudaginn og þriðjudaginn fyrir tímann minn til að klára að vinna mig upp skv. nýju forsendunum sem mér fannst flækja málin ansi mikið. Síðan núna rétt í þessu hringdi samnemandi minn sem er í miðjum stúdentsprófum og stefnir líka á stigspróf, og óskaði eftir að skipta við mig á tíma þar sem hún hafði ruglast á próffögum (líffræðilestur í stað eðlisfræði - holycrappola!) og var í vandræðum, ég vorkenndi henni svo ferlega að ég ákvað að gera það fyrir hana (þótt það komi sér bölvanlega fyrir mig út af þessum breytingum og svona).... í það minnsta græðir hún þá á því að maður er atvinnulaus, ágætt að einhver nýtur góðs af því bara, ég hefði alls ekki getað hjálpað henni ef ég hefði þurft að vinna líka, ég get notað daginn á morgun væntanlega í að æfa mig svo þótt það verði erfiðara þá reddast þetta. Alltaf gaman að gera rétt, líka þegar það bítur mann í rassinn. Sum góðverk sem ég hef unnið hafa endað með að vera meiðandi, bókstaflega í einu tilviki, þar sem ég bjargaði hvolp fyrir fatlaða konu, og hundurinn beit mig barasta, samt ekki í rassinn.
Mér er svo kalt að ég ætla að fara í heita sturtu í hálftíma núna, skella á mig bodylotion og þykkum sokkum og fara svo að æfa mig.
:: geimVEIRA:: kl. 17:40:: [+] ::
...