[::..Allur réttur áskilinn, öll opinber birting og/eða eftirritun í opinberum
fréttamiðlum, þ.m.t. prent-, vef-, sjónvarps- og útvarpsmiðlum, er óheimil án skriflegs
samþykkis höfundar...::]
Ég átti að fá að vita með vinnuna þarna sem ég fór í viðtölin tvö út af í dag, en það var haft samband við mig og sagt að ég væri "sterk inni í myndinni", en það yrði því miður ekki látið vita fyrr en á miðvikudaginn. Síðan stuttu síðar var hringt frá annarri ráðningarstofu og hafði sú starf sem þeim þótti passa mér, svo ég gaf ok á að það yrði sett í gang. Það var ágætt að fá að vita þetta svona, enda stressandi dagur í meira lagi.
Ég lærði eins og mofo alveg hreint í gær og í dag, náði að fara þokkalega yfir hljómfræðidótið, en fattaði ekkert þetta sem ég skildi ekki í gær, reyndi bara að muna þetta allt saman. Svo fór ég í vorpróf í hljómfræði, kom þar ekki það svínslegasta dæmi sem hefur verið lengi (sagði stelpa sem hefur tekið vorpróf 2-3 sinnum áður) en þar vantaði ákveðna þætti sem alltaf hafa verið hingað til, svo maður var alls ekki öruggur með út frá hvaða forsendum skyldi byggja. Ég skipti nokkrum sinnum um skoðun en tók síðan bara ákvörðun, án þess að vera 100% og vann síðan allt draslið með nagandi efa, enda engin leið sem ég sá til að vera viss, en alveg ljóst að ef ákvörðunin væri röng væri góður séns að ég fengi núll fyrir meira en hálft prófið. Parturinn með efninu sem ég skildi ekki bofs í var stærri en ég hafði vonað, svo ég var alveg komin með dúndrandi hausverk og hefði getað bundið slaufu með öxlunum upp yfir kollinn þær voru komnar svo hátt.... eftir prófið varð mér mjög létt að heyra jafnvel bestu nemendurna segja að þeir voru alveg jafntýndir og ég, en allir sem ég heyrði í giskuðu á það sama og ég (-hjúkk- vonandi ekki allir að steypa), en voru hreint ekkert vissir. Ég var allavega fegin að heyra að þetta var ekki bara ég, verandi eitthvað sérlega slow. Ég held bara í vonina að þetta hafi verið sérstaklega erfitt próf og maður hafi ekki verið alveg úti að sk*ta þrátt fyrir að skilja ekkert í 1/4 hluta þess að ráði. Ég var síðan með dúndrandi hausverk og stressaðri en ég veit ekki hvað í verklega tónheyrnarprófinu, sem var strax á eftir hinu. Ég ruglaðist slatta, en mest út af stressi bara, alveg merkilegt hvernig mér finnst þetta miklu erfiðara en nokkurn tímann að vera að gaula á sviði. Valdar voru 4 æfingar fyrir mann, og fékk (helv. djös. urr) æfingar, sem ég hafði merkt hjá mér sem sérstaklega erfiðar, (af því að ég ætlaði að fara betur yfir þær ef ég hefði tíma, sem ég hafði svo ekki), ruglaðist aðeins, en náði einni æfingu svona circabout alveg í gegn ekki skammlaust þó. Eftir stendur að ég er búin í þessum 2 af 3 erfiðustu prófunum í vor, en ég hef ekki minnstu hugmynd hvað ég gæti hafa fengið í einkunn, annað hvort eitthvað ömurlegt eða sæmilegt, þetta var allt einhvern veginn svínslega erfitt og ruglingslegt og með stressinu í kaupbæti er maður blankó í hausnum eftir þetta allt saman. En þetta er allavega búið! Jibbí!
:: geimVEIRA:: kl. 00:03:: [+] ::
...