[::..Allur réttur áskilinn, öll opinber birting og/eða eftirritun í opinberum
fréttamiðlum, þ.m.t. prent-, vef-, sjónvarps- og útvarpsmiðlum, er óheimil án skriflegs
samþykkis höfundar...::]
Þá er veturinn loksins officially búinn í skólanum hjá mér! Jibbíííí!!! Ég var í 4. stigsprófi áðan, þar voru staddir Jóel Pálsson, Sigurður Flosason og Erik Qvick, sem voru dómnefndin, en einnig Kristjana Stefánsdóttir kennarinn minn, Björk Jónsdóttir (fyrrverandi kennari minn)og Jóhanna Linnet sem eru kennarar klassísku söngdeildarinnar og svo náttúrulega undirleikarinn hann Kjartan Valdimarsson. Ég var svona bara þokkalega róleg fyrir prófið, ákvað að taka því rólega í morgun bara og hafa það næs, horfði á Oprah bara og svona. Mér leist nú ekki á mig í prófinu varð einum of stressuð þegar ég kom inn fyrst, steikti blússkalann í stressi, en náði að koma hinum sæmilega frá mér, í lögunum ruglaðist ég í forminu í öðru af þeim lögum sem ég fékk að velja (bara stress, ég kann þetta alveg afturábak og áfram) svo það var bloody spælandi, næsta lag steinlá fyrir utan smávegis rugl sem ég laug mig út úr, þriðja lagið sem þeir völdu var síðan eitt af mínum sterkari með lærðu sólói í líka sem þykir sæmilega erfitt og það tókst bara stórvel. Síðan kom óundirbúin impróvisering þar sem maður átti að skatta eftir að heyra hljómagang einu sinni sem spilað var undir, það gekk líka ótrúlega vel, lestur á prófinu var circabout 7 sinnum léttari en djöfuldómurinn í 2. stigsprófinu um jólin, ég var ekki alveg 100% með þetta en gekk í það minnsta betur en fyrir jól. Síðan var manni vísað út og sagt að bíða.
Svo fékk ég hrós og kossa frá Björk og Jóhönnu og ég svona var bara vandræðaleg, þar sem ég mundi náttúrulega ekkert nema hvað ég ruglaðist mikið og steikti skalann mikið og allt það, en þær sögðu: "Til hamingju" svo ég hugsaði:" já með að vera búin með þetta og svona.... já takk fyrir það". En síðan kom Kristjana út úr salnum og brosti hringinn og sagði að ég hefði náð hæsta prófinu í vor af hennar nemendum... og ég hugsaði: "Hmm... úff æi greyjunum gekk öllum svona illa í vor?" síðan sagði hún mér einkunnina: 9,4.
Ég trúi þessu ekki ennþá, en er mjög ánægð, er samt pissed út í mig að vera að ruglast í hlutum sem ég kunni alveg, en ég ætla að skrifa það bara á stress sem hefur eðlilega verið þokkalega yfir meðallaginu undanfarið. Næst verð ég að sleppa stressinu alveg og syngja bara.