[::..Allur réttur áskilinn, öll opinber birting og/eða eftirritun í opinberum
fréttamiðlum, þ.m.t. prent-, vef-, sjónvarps- og útvarpsmiðlum, er óheimil án skriflegs
samþykkis höfundar...::]
Whatthafuck! Í dag hef ég í tvígang á undarlegum stöðum séð stóra gamla ameríska líkbíla. Þetta er ekki sami bíllinn en svipuð módel, annar var svartur, hinn grár. Þetta hefur fengið mig til að sakna Six Feet Under. Six Feet Under og Cold Feet, ferlega væri ég mikið til í að horfa á þá í kvöld, urr. Mig vantar stórkostlega afþreyingu núna eða eitthvað meiriháttar skemmtilegt til að dreifa huganum. Ég er aftur komin með axlirnar upp undir eyru. Ég þarf reyndar bara að vinna á morgun og hinn, svo fer ég í sumarfrí og páskafrí. Eftir páska eru bara 6 vinnudagar eftir og ég er hrædd um að þá eigi ég að kreista einhvern fróðleik upp úr mér fyrir eftirmenn mína (sem þið megið geta hvort er vænlegur tími til að koma frá sér öllu sem maður hefur lært á 8 árum, þannig að nokkur skilji það). Það veit ég fátt leiðinlegra en að kenna, tilgangsleysið er alveg að fara með mig nú þegar, ég vill öllum vel og allt það, en það er a big bucket of fuck-off-and-get-off-my-back-what-the-fuck building up í mér.
:: geimVEIRA:: kl. 13:31:: [+] ::
...