[::..Allur réttur áskilinn, öll opinber birting og/eða eftirritun í opinberum
fréttamiðlum, þ.m.t. prent-, vef-, sjónvarps- og útvarpsmiðlum, er óheimil án skriflegs
samþykkis höfundar...::]
Sux ass Enn einn laugardagurinn sem fór í leiðindi. Mér datt ekki einu sinni í hug að æfa mig, náði þó að ryksuga that's something I guess... merkilegt það einhvern veginn er ekkert að gera þegar maður er í svona skapi, ekkert í sjónvarpinu, enginn til að kjafta við á netinu, nada. Og ekki ætlaði ég að blogga um svona fúlheit.... en það virðist vera það eina sem ég get gert, enda klukkan of margt til að fara að æfa sig núna.. bahh. Það fáa sem ég gæti núna notað tímann viturlega til þess að gera, finnst mér of glatað að gera á laugardagskvöldi, þótt merking þess kvölds hafi ekki haft samasemmerki með fjöri eða tilbreytingu síðan ég man ekki hvenær. Semsagt leiðindi, fúlheit, einmanaleiki. Rassasog.
:: geimVEIRA:: kl. 00:32:: [+] ::
...