[::..Allur réttur áskilinn, öll opinber birting og/eða eftirritun í opinberum
fréttamiðlum, þ.m.t. prent-, vef-, sjónvarps- og útvarpsmiðlum, er óheimil án skriflegs
samþykkis höfundar...::]
Nú verða sagðar fréttir: Í morgun var haft samband við mig frá ráðningarstofu og óskað eftir að áframsenda umsóknina mína á spennandi fyrirtæki, sem reyndar hafði auglýst eftir háskólamenntuðu fólki (svo ég sótti ekki um þar) en fyrst ráðningarstofunni leist þó þetta vel á mig samþykkti ég það að sjálfsögðu.
Síðan var ég núna áðan boðuð í atvinnuviðtal á annan stað á mánudaginn næsta. Það er bara allt að gerast. Ef ég næði nú viðtölum á báðum stöðum, það væri prima sko, en í það minnsta er eitthvað í pípunum. Það veit nú alltaf á gott.
:: geimVEIRA:: kl. 13:06:: [+] ::
...