[::..Allur réttur áskilinn, öll opinber birting og/eða eftirritun í opinberum
fréttamiðlum, þ.m.t. prent-, vef-, sjónvarps- og útvarpsmiðlum, er óheimil án skriflegs
samþykkis höfundar...::]
Jón Gnarr - ENTJ? Ég vil þakka Jóni Gnarr kærlega fyrir að vera svona ferlega fyndinn í útvarpinu í morgun. Hann er fyndinn þegar hann er pirraður og í morgun var hann mjög pirraður blessaður, og las blogg einhvers sem hatar hann svo hjartanlega og dissaði hann hægri vinstri, og eftir að hafa lesið eina línu sá hann að hann yrði að lesa þetta með leiðinda-kellinga-röfl-röddinni sinni, sem er náttúrulega snilld alveg hreint... svo las hann allt bloggið um sig með þeirri rödd og hnussaði í endann. Það er eitthvað svo frábærlega sjálfbært við að vera opinber persóna sem fólk lætur bögga sig, það fólk bloggar eitthvert níð um Jón, Jón sem verður svona líka fyndinn þegar hann er pirraður les níðið upphátt í útvarpinu, fær enn betri hlustun því þetta var svo fyndið, svarar fyrir sig fullum hálsi (og réttilega m.v. þetta væl þarna sem hann las), sem óumflýjanlega mun pirra eitthvað lið... það var alveg snilld þegar hann downgrade-aði þennan bloggara úr því að vera "kona" niður í að vera "stelpufífl" whahahah, og sagði þegar hann las að þetta væri vélaverkfræðinemi, að ef hann ætti vél myndi hann sko segja þessari að "láta hana VERA!". Það er eitthvað element af gáfum + kaldhæðni + ákveðni sem fær mig til að gruna sterklega að Jón Gnarr sé ENTJ sbr. persónuleikaprófið, ég þyrði að veðja á það. Allt þetta: "I'm very sorry, but I have to kill you!" attitude... já og náttúrulega líka það að ekkert fer jafnmikið í taugarnar á húmorslausu liði og þannig týpur.
:: geimVEIRA:: kl. 19:13:: [+] ::
...