[::..Allur réttur áskilinn, öll opinber birting og/eða eftirritun í opinberum
fréttamiðlum, þ.m.t. prent-, vef-, sjónvarps- og útvarpsmiðlum, er óheimil án skriflegs
samþykkis höfundar...::]
Hearts of gold exposed! Jamm, þá er ég búin að fara í tvö viðtöl hjá ráðningarstofum í viðbót og sækja um 2 störf í viðbót. Þetta er sko heilmikill bransi að vera að selja sig svona grimmt. Talandi um það, voðalega er þetta eitthvað cheesy þetta faldrar myndavéladæmi á Stöð 2, svoleiðis yfirauglýst að þeir hefðu ekki auglýst exclusive viðtal við Colin Powell meira. Síðan horfði maður á þetta, fyrst fór einhver gaur (hann var sýndur undirbúa "aðgerðina" og eina sem sást nú af honum var að hann var með flösu dauðans og virtist vera með blæðandi sár á kinninni) síðan fór hann og þóttist vera óöruggur kúnni sem hætti við annars vegar erótískt nudd og hinsvegar vændiskaup. Ég er nú svosem ekkert í vafa um að þetta erótíska nudd sem endar með fullnægingu er nú vændi - enda mella sem gefur handjob aldrei verið kölluð annað en mella. Ég sá í morgun þar sem hann átti að vera hjá vændiskonu. Myndin var ótrúlega bjöguð (til að fela allt og alla) svo þetta hefði frekar átt að fara í útvarp en sjónvarp, nema hvað að konan virkaði bara svoleiðis frábærlega næs og almennileg, voðalega yfirveguð og góð við flösukarlinn þarna. Hún kvaðst vera með fastan taxta í vændinu pr. klukkutíma, en síðan væri hún líka í öðru starfi sem væri í næturvinnu. Það sem var svo asnalegt eitthvað var, að þetta varð að engu leyti frétt eða afhjúpunin sem reynt var að búa til með hype-i. Ekkert sást á mynd. Ekkert nýtt kom fram. Ekkert átti sér stað ólöglegt þar sem gaurinn bakkaði út úr öllu saman, það sem sat eftir hjá mér var nú bara: "Djöfull að þessi kona megi ekki bara gera það sem hún vill!" Hún virtist alveg vita vel hvað hún væri að gera, var voðalega almennileg við karlinn þarna og meira að segja endurgreiddi honum peninginn þegar hann þóttist bakka út, eftir að hafa spjallað þónokkuð lengi við manninn. Eftir sat hjá mér ekki: "Vá, en rosalegt, það er vændi á Íslandi!" sem let's face it eru nú engar fréttir hvort sem er, heldur: "Djöfull eru næs hórur til á Íslandi!" Mér finnst líka bara ömurlegt fyrst að þeir eru að tefla hennar einkalífi í tvísýnu (þótt ekkert hafi svosem sést, þá kannski hafa systkin konunnar t.d. getað þekkt hana eða eitthvað) að þeir þæðu að láta endurgreiða sér. Maður hélt sko alveg með hórunni.
Þetta endaði með að vera þvílíka auglýsingin, og t.d. með nudd-exposé-ið þá gátu fréttamenn þess hvaða heimasíður ætti að fara inn á til að panta sér svona. Síðan létu þau eins og þau væru að benda fólki á einhvern sora, veltu því upp hvort þetta væri ekki "pimping" að reka svona þjónustu. Þessir fréttamenn mega eiga það, að þeir voru mestu pimparnir sjálfir í þessu, þetta var ein mesta jákvæða auglýsing fyrir vændið á Íslandi sem sést hefur. Núna vita allir hvert þeir eiga að leita, hvað þetta kostar, að hórurnar eru mjög næs og góðar konur og að þetta er allt saman á gráu svæði. Þeir auglýstu þetta svo mikið að það er alveg ljóst að þetta var í gróðaskyni gert. Hvernig var það nú aftur, kæru fréttamenn, voruð þið ekki að enda við að segja að það væri ólöglegt að hagnast á vændi þriðja aðila?
:: geimVEIRA:: kl. 15:52:: [+] ::
...