[::..Allur réttur áskilinn, öll opinber birting og/eða eftirritun í opinberum
fréttamiðlum, þ.m.t. prent-, vef-, sjónvarps- og útvarpsmiðlum, er óheimil án skriflegs
samþykkis höfundar...::]
Syncopated subconscience Ég fór í fyrsta viðtalið hjá ráðningarstofu í dag, það gekk bara svona ágætlega held ég. Ég fékk allavega hrós fyrir vel útfyllt CV, ég vona að það sé ekki eitthvað standard compliment sem allir fá og ég held að ég hafi komið svona ágætlega fyrir bara.
Ég fór klikkaðslega seint að sofa í gær, þar sem ég loksins fékk ákveðið atriði í lagi (bassalínu í lagi sem ég er að reyna að pikka upp og skrifa nótur að) til að hljóma rétt í Sibelius, en þetta var að gera mig gráhærða, þar sem þetta er í takti sem ég hef aldrei skrifað í fyrr (en á samt að þekkja)... já já, transcribing for fun.... that's me. Síðan sá ég að það gat samt ekki verið rétt, þótt það hljómaði rétt þá var þetta ekki að ganga upp, þetta verður nú allt að ganga upp stærðfræðilega nefninlega til viðbótar við að það hljómi rétt. Í tónheyrnartíma í dag spurði ég síðan kennarann og hann setti þetta upp eins og ég gerði fyrst (og mér fannst ekki ganga upp) svo ég fór að efast hvort ég hafi bara verið með meinloku. Síðan eftir tímann fattaði ég að það var bara víst rétt hjá mér að þetta væri ekki rétta leiðin, það hafði verið góð ástæða fyrir því að þetta gekk nefninlega einmitt ekkert upp í gær. Arrg! Mig langar svakalega mikið til að kunna að gera svona. Mig langar svo oft að taka lög sem ekki finnast nótur að, það er ekki mikið erfitt að finna hljómana orðið (eða allavega svona nógu nálægt til að það sé nothæft) en síðan koma synkópur dauðans og ferólur - FERÓLUR? Það er frábært að vera að krafsa svona í bakkann vitandi ekki meira en maður gerir, reynandi að gera svona eiginlega allt of erfiða hluti m.v. kunnáttu. Þegar ég loksins kann þetta allt, þá verður manni svo mikið í mun að nota þetta allt saman örugglega, að maður fer að semja lög out of spite, það verða sko synkópur og ferólur út í eitt í taktskiptum dauðans í tóntegund sem er ekki til.
Ég fer í annað viðtal á morgun og líka í langþráða klippingu og söngtíma. Ég get alveg sagt það og skrifað að þessir dagar eru skrýtnasta sumarfrí sem ég hef tekið, andstæða afslöppunar með öllu, vonandi fæ ég almennilegt nudd hjá hárgreiðsludömunni minni, það er alveg toppurinn að fá svona nudd alltaf. Verst að ég fer ekki fyrst þangað, síðan í viðtalið. Í það minnsta ætti ég að vera fín í undirleikstímanum mínum.
:: geimVEIRA:: kl. 22:56:: [+] ::
...