[::..Allur réttur áskilinn, öll opinber birting og/eða eftirritun í opinberum
fréttamiðlum, þ.m.t. prent-, vef-, sjónvarps- og útvarpsmiðlum, er óheimil án skriflegs
samþykkis höfundar...::]
Pólitískur grautur Þessi bygggrautur var hreint ekki svo vitlaus. Eiginlega bara alveg fínn. Ég er ekkert lítið fegin að hafa ákveðið að gera bara hálfa uppskrift, þetta tvöfaldaðist að rúmmáli í pottinum, en varð svona ekki jafnmikill grautur og ég átti von á, en kornin voru samt mjúk. Ég hugsa að það hefði verið gott að hafa súrmjólk með þessu, ég setti smá mjólk og mér fannst það ekki alveg passa.
Rosalega er ég hissa á þessum fréttum. Mér líst engan veginn á þetta mál sama hvernig litið er á. Ef þetta er rétt sem Davíð heldur fram, þá er ég afskaplega ósátt við að hann hafi legið á öðrum eins tilburðum til glæpsamlegs athæfis hafi hann ekki séð ástæðu til að fara formlegar leiðir að þessu máli, var það af því að honum þótti þetta ekki nógu gróft? Hvað hefur þá breyst? Ég skil heldur ekki hvers vegna Baugur myndi nokkurn tímann leggjast svona lágt, en mér þætti enn undarlegra ef Davíð, þótt hann sé skáld og sögumaður og allt það, færi með uppspuna af annarlegum hvötum. Það þætti mér með ólíkindum að mútuboð til æðsta embættismanns ríkisins skyldi eiga fara leynt undir nokkrum kringumstæðum, svo ef Davíð fær að njóta vafans, hafandi yfirgnæfandi traust kjósenda í þetta langan tíma til stjórnarsetu, þá í besta falli hljóp hann stórkostlega á sig núna. Því þessar yfirlýsingar hans koma langverst út fyrir Davíð. Í mínum augum er harla ólíklegt að Davíð kunni ekki að meta hvort hlutir séu uppi á borði og sléttir og felldir. Hafi honum verið boðnar mútur, þá er ekki nóg að hann hafi afþakkað þær, í mínum augum er það beinlínis saknæmt fyrir mann í hans embætti að taka slíku ekki gífurlega föstum tökum, opinberlega og formlega, í gegnum réttarkerfið og sjá til þess að slík spilling verði upprætt. Hafi Davíð verið að reyna að gera það bak við tjöldin, þá útskýrir það líka ýmisleg ummæli hans, þetta myndi útskýra ansi margt. En að æðsti embættismaður ríkissins sýni réttarkerfi landsins ekki meira traust en það, að fara ekki rakleiðis með svo alvarlegt mál sem þetta til lögreglunnar þykir mér vekja afskaplega grófar spurningar. Gleymdi Davíð Oddsson fyrir hverja hann gegnir trúnaðarstörfum? Hvaða trúnað var hann að halda gagnvart stórfyrirtæki út í bæ, farandi með þetta meinta mútumál óformlegar leiðir í kerfið, sem var mikilvægari en sá trúnaður sem við kjósendur höfum lagt á hann í gegnum árin? Ég er svo hissa á Davíð, hann á nú að vera meiri refur en þetta.
:: geimVEIRA:: kl. 10:24:: [+] ::
...