| |
:: Þvaðurveita geimVEIRU :: Forsíða | e-mail | Skoða gestabókina | Skrifa í gestabókina | | |
:: fimmtudagur, febrúar 13, 2003 :: Jæja, nú er ég búin með 1/6 uppsagnarfrestsins, en er lítið sem ekkert búin að leita að vinnu. Ég hef lesið svona auglýsingar á netinu, en engin þeirra hefur heillað mig one bit. Ég get alls ekki hugsað mér að vinna við bókhald eða talnaafstemmingar, það hefur verið hluti af mínu djobbi en sá leiðinlegasti oft á tíðum, ég veit ekki hvurslags djobb gæti verið þarna úti fyrir fólk eins og mig, en ég vona að það sé rétt sem ég heyrði eitthvað ráðningarstofulið segja að leitað væri að fólki með reynslu frekar en nýútskrifuðu úr háskóla. Þ.e.a.s. ef ekki var meint þá fólk með bæði háskólamenntun og reynslu. Síðan náttúrulega veit maður ekki hvað meint er með "reynslu". Ég hef margþætta en samt frekar mikið sérhæfða reynslu, sérhæfða á sviði sem ég er ekkert viss um að mig langi endilega að starfa við, eða að ég fengi starf við hæfi í. Ég hef séð auglýst eftir fólki og óskað eftir eiginlega bara litlum hluta af því sem ég hef verið að starfa við. Ég gæti ekki hugsað mér að fara að takmarka það sem ég hef verið að gera og lært við að vinna allan daginn við 1/15 af því sem ég gæti starfað við. Það er kostur að koma úr litlu fyrirtæki hvað þetta varðar, að maður hefur fengist við svo fjölbreytta hluti. Heilinn á mér myndi dofna upp við að vinna t.d. bara við að svara í símann eða eitthvað. Það er ekki nóg að vera rosalega góður í einhverju til að maður eigi að starfa við einmitt það. It's not just "being really, really, really, ridiculously good-looking...." (arg Zoolander cracked me up) - ég hef oft fengið hrós fyrir símsvörun en holycrappola að ég myndi vilja vinna einungis við það. Jamais! Talandi um waste of brainpower. Well, ef það verður það eina sem ég get fundið verð ég að lýsa mig gjaldþrota og fara í háskóla.
|
|