[::..Allur réttur áskilinn, öll opinber birting og/eða eftirritun í opinberum
fréttamiðlum, þ.m.t. prent-, vef-, sjónvarps- og útvarpsmiðlum, er óheimil án skriflegs
samþykkis höfundar...::]
It's official! Ég fer til Frakklands í sumarfrí, nánar tiltekið til Nice í sól, afslöppun og á jazzhátíð! Er það ekki frábært?!! Ég er allaveg þokkalega sátt, þriggja vikna sól og ljúfleiki út í gegn á verði sem er brandari. Flug og gisting í þrjár vikur á undir 100 þús. kr. á frönsku Rívíeruna - fáránlegt. Nú er að vona að nýja flugfélagið fari ekkert að svíkja mann neitt, annars hef ég engar áhyggjur, gistingin er bókuð, þannig að þá kæmi maður sér bara öðruvísi á staðinn. Og minntist ég á jazzhátíðina ha? Allavega, í fyrra þá voru margir sem ég kannaðist við, og einn af mínum uppáhalds Ludovic Navarre a.k.a. St. Germain, og Llorca og Air, síðan voru þar fyrir utan, BB King, George Clinton, Vocal Sampling, Youssou N'Dour, Dave Stewart (Eurythmics), Dee Dee Bridgewater (sem ég fékk CD í jólagjöf frá ErluROKK og familíu), og í hitteðfyrra var line-up-ið hræðilegt alveg.... (sérstaklega þar sem ég sá það auglýst úti, og ég hafði ekki vitað af þessu fyrir og þar var enn fleira skemmtilegt: t.d. líka St.Germain, Kool & the Gang (híhí), Brooklyn Funk Essentials, Jazzanova, Bebel Gilberto, Cesaria Evora og BB King var líka þá, og Dee Dee, og Van Morrison).
Nú bíð ég í mikilli spennu að sjá hvort þetta verði ekki geðveikt prógramm í sumar líka, en það er enn eftir að setja upp númerin (enda langt þangað til). Sko ef ég næ að sjá St. Germain er ég sátt :) og ef ekki, well ég verð þá allavega brún OG þjálfa jazzeyrað - hey já og næ að fara á Picasso safnið sem ég missti af síðast, (og þar sem það eru komin 13 ár síðan ég fór á Chagall safnið skellir maður sér kannski aftur þangað). Hey já og ég fékk út úr hljómfræðiprófinu mínu: 8,7, ég er mjög ánægð með það bara.
Mér tókst að finna forritið sem ég nennti ekki að leita að .... svona áttu myndirnar sem ég var búin að setja þarna fyrr inn á bloggið að vera, þetta er semsagt útsýnið af hótelinu þar sem er búin að bóka mig á semsagt, íbúðin var á næstu hæð fyrir neðan, svo maður sá þetta útsýni líka úr herberginu. Jæja, nú er bara eftir að koma sér í einhvers konar bikinihæft form - holy cow! - oh well, ég hef í það minnsta ágætis tíma fyrir mér núna. Lýsi hér með eftir ógeðslega hollum og góðum uppskriftum.