[::..Allur réttur áskilinn, öll opinber birting og/eða eftirritun í opinberum
fréttamiðlum, þ.m.t. prent-, vef-, sjónvarps- og útvarpsmiðlum, er óheimil án skriflegs
samþykkis höfundar...::]
Restaurant geimVEIRA Í gær fór ég í Debenhams af því að það var í boði 25% afsláttur af öllu þar. Ætlaði nú að finna á mig föt jafnvel, en lenti í því nú sem áður að ekkert átti við mig, ef sniðið var flott þá var eitthvað fáránlegt borðadæmi saumað á þetta, pallíettur á skástu prjónapeysunni sem ég sá, eða þá ef liturinn var fínn þá var flíkin úr glerhörðu efni þannig að þetta var eins og að vera í umbúðum frekar en fötum, svo ég álpaðist enn og aftur að skoða matarstell sem mér leist svo skrambi vel á síðasta vetur. Ég spáði mikið í þetta og endaði með að skella mér bara á þetta, enda 13 ára IKEA bráðabirgðastellið orðið svakalega lúið, rispað, brákað, brotið, týnt og ískrandi. Svo stormaði ég út í bíl með fulla innkaupakerru af leirtaui. Mér fannst ég voðalega heimilisleg eitthvað. Með 8 manna matar- og kaffistell í farteskinu. Mér fannst ég nú bara gera fínan díl, því ég fékk stell fyrir 8, með stórum matardiskum, djúpum diskum, frekar stórum kökudiskum, bollum og undirskálum og átta djúpar skálar ekta fínt í thailenska matinn eða Cheeriosið, stórt fat og tvo stóra latte mögga á 18 þús kall, síðan átti ég reyndar gjafakort upp á 5 þúsund kall (sem ég fékk fyrir að tala um kartöflur í focusgrúppu um daginn) svo ég fékk allt þetta fyrir 13 þúsund krónur.
Bara einn bömmer, matardiskarnir sem eru svo stórir og flottir, eru heldur stórir í uppþvottavélina ( en vélin er gömul og frekar plásslítil, þetta mun passa í næstu vél). Svo ég hugsa að ég noti gömlu diskana hversdags og hina spari, ég þekki mig nógu vel til að vita að ég mun aldrei drullast til að þvo þá upp annars. Nú þarf maður að fara að bjóða í mat hægri, vinstri.
Dropping like freaggin flies Í gær þegar ég var að reyna að sofna fór ég í smá channel surfing og datt niðrá það eitt mest hilarious shit sem ég hef séð lengi, gaur þrumandi eitthvað yfir biðröð af fólki, sem hrundi síðan í gólfið og var rifið upp aftur og hent í gólfið upp á nýtt. Þá var þetta Showbusiness Jesus gaur að blessa liðið í gólfið. Liðið kom halt og skakkt og hoppaði og skoppaði á eftir eins og í örgustu dömubindaauglýsingu. "This woman has a bad hip" sagði Sideshow Jesus við Showbusiness Jesus, og Mr. Showbiz blessaði hana mörgum sinnum í gólfið og spurði síðan "How do you feel?" og konan var rifin upp þarna og látin halelújast þarna og labba fram og til baka. Ég var nú alveg búin á því af hlátri þegar allt í einu ég fattaði að þetta var héðan frá Íslandi þegar Showbiz JC var að skamma íslenska túlkinn því hann crowdaði Showbiz JC - cramped his style, og stóð of nálægt. Síðan fór hann að skamma skemmtaraleikarann fyrir að spila ekki rétt lag, heimtaði meira power í þetta, því það var svo rosalegur heilagleiki í gangi. Þetta var svakalega fyndið. Alltaf gaman þegar trú gleður mann, ég gat allavega hlegið mikið að þessu, mikið mikið.
:: geimVEIRA:: kl. 13:33:: [+] ::
...