[::..Allur réttur áskilinn, öll opinber birting og/eða eftirritun í opinberum
fréttamiðlum, þ.m.t. prent-, vef-, sjónvarps- og útvarpsmiðlum, er óheimil án skriflegs
samþykkis höfundar...::]
Ég fór áðan og kíkti á tölvu hjá gömlum karli. Tölvan var öll í klessu, mjög líklega vírus þar á ferð. Þessar veirur sko... alveg klikk!!!!
Karlinn notar MS Works og það var bara gersamlega horfið, síðan var IE bara með þetta magnaða rugl Windows error, eitthvað á þá leið: unable to find internet explorer32, og karlinn vildi svo mikið vita hvers vegna 32. Eins og gefur að skilja átti ég ekki betri útskýringar en að þetta væru klassísk Microsoft error skilaboð, enginn skyldi þau og það væri m.a. þess vegna sem svona margir hata Microsoft. Karlinn fékk svona hugljómun, "Jaaaá, þarna er það ekki Bill Gates sem á það fyrirtæki?" - "Jú einmitt", sagði ég. Æ greyið, hann var með McKaffee vírusvörn, sem ég var aldrei mjög hrifin af - og greinilega hafði ekki verið nógu idiotproof, því hann hafði aldrei heyrt um annað eins og að sækja sér vírusupdate reglulega. Enda kom upp úr krafsinu að vírusvörnin var hreint ekkert að gera, sagðist ekki hafa öll component 'n sheite.
Sko, við veirurnar tökum nú svona vélar án fyrirhafnar, algerlega útglenntar - upp á gátt, meina ég. Iss.
Verst að nú þarf ég einhvern veginn í fjáranum að koma almennilegri vírusvörn upp, og reyna að keyra vélina. Ætti ég ekki að geta notað mínar bootdiskettur bara upp á clean boot ???? Shout-ið svarið ef einhver veit.
Ég fór að versla og endaði með að kaupa svínarif til að gera svona austurlenskan ostrusósurétt *yum* sem ég hef ekki smakkað í háa herranstíð, síðan verslaði ég sko dilkahjörtu, í fyrsta skipti á ævinni. Þessu fylgdu náttúrulega hinir ýmsustu óþarfa bullhlutir, svo margir... að það var ekkert pláss fyrir Bud Ice bjórinn sem lá þarna í sakleysi sínu. Og fyrir það mun hann deyja.
*rop* Kaldur og fínn. Já, það var gott að hann var svona fyrir mér, hann þessi!
:: geimVEIRA:: kl. 17:32:: [+] ::
...