[::..Allur réttur áskilinn, öll opinber birting og/eða eftirritun í opinberum
fréttamiðlum, þ.m.t. prent-, vef-, sjónvarps- og útvarpsmiðlum, er óheimil án skriflegs
samþykkis höfundar...::]
Malus leikur á tónleikum á Pravda annað kvöld. Við tökum jazzaðra prógram í anda fimmtudagstónleikanna á Pravda. Tónleikarnir hefjast kl. 22 og það er frítt inn og léttvín á tilboði.
Ég fer annars í smá starfskynningu á morgun - aldrei að vita nema maður detti inn í smáuppgrip.
:: geimVEIRA:: kl. 00:51:: [+] ::
...
:: miðvikudagur, júní 29, 2005 ::
Mig dreymdi svo illa að ég er alveg glaðvöknuð - ég hnerra líka og hnerra, ekki nógu vænlegt fyrir röddina. Held ég fái mér bara eitthvað heitt að drekka og reyni að kúra mig aftur niður. Verst að mig langar ekkert í neitt heitt og er alltof vakandi til að sofna aftur. *Geisp* - og þó.
:: geimVEIRA:: kl. 04:57:: [+] ::
...
:: laugardagur, júní 25, 2005 ::
Oh well... Vægast sagt illa mætt í Borgarnesi - feitur mínus í budduna. Það vantaði ekki að tónleikarnir voru þrælfínir. Þótt svo til enginn væri í skóginum heyrðist þó það. Borgfirðingar misstu sko af miklu! Öss! Þeir sem á hlýddu voru allavega ánægðir. Það er fyrir öllu. *hóst*
Annars minni ég á tónleika Tyftar annaðkvöld og mánudagskvöld á Pravda Bar. Enginn ætti að missa af Jim Black, Hilmari Jenssyni og Andrew D'Angelo. Ég er ekki viss um að ég komist annað kvöld en ég hefði helst viljað sjá þá bæði kvöldin.
:: geimVEIRA:: kl. 20:46:: [+] ::
...
:: föstudagur, júní 24, 2005 ::
Ég er svo plögglaus eitthvað. Sigurdór segir það sem ég vildi sagt hafa hér.
Ég svaf algjörlega ömurlega í nótt - held ég reyni einhvern veginn að leggja mig í dag - maður verður nú að mæta með full batterí í kvöld!! Ég hlakka til að koma í Borgarnes. Vonandi eru Borgfirðingar í stuði og kíkja á Búðarklett í kvöld. Ég mæli auðvitað með því. En ég er ekki hlutlaus hohoho.
:: geimVEIRA:: kl. 12:05:: [+] ::
...
:: fimmtudagur, júní 23, 2005 ::
Syngi-syngi-hlusti-hlusti Malus massaði æfingar í dag og í gær fyrir gigg morgundagsins sem verður annaðkvöld í Borgarnesi á Búðarkletti, nokkrum lögum skipt út og snurfusað aðeins, ætti að verða massafjör.
Ég sat frábært masterclass Catherine Sadolin í gær og í dag. Alveg magnað að sjá hversu fljót hún er að vandamálagreina. Í þetta sinn var ég bara áhorfandi en ég var "aktívur" þáttakandi síðast, það var mjög gaman að sjá hvernig fólk náði að tækla ótrúlegustu hluti undir hennar leiðsögn.
Annars styð ég þetta veður heilshugar og ætla að reyna að komast út í það aftur sem fyrst!
:: geimVEIRA:: kl. 18:33:: [+] ::
...
Maður dagsins:
Ofboðslega þykir mér alltaf vænt hann fyrir hvað hann berar sálina þegar hann syngur - algjörlega gefur manni bút af sér. Gáfur, húmor, hæfileikar wahh - maður er alveg svona: "Mamma, má ég eig'ann?". Þetta er stutta, minnst væmna, útgáfan af því sem ég vildi sagt hafa. Vildi að fleiri væru svona.
:: geimVEIRA:: kl. 00:16:: [+] ::
...
:: sunnudagur, júní 12, 2005 ::
Ja... tónlistarflutningurinn gekk alveg þrælvel barasta hjá Malus á fimmtudaginn - við fengum voðafín komment á þetta - mjög gaman, ég náði síðan í lokatóna B3 líka sem var gaman. Föstudagskvöldið var ósköp notalegt að glápa bara á imbann í rólegheitum. Ég fór síðan á tónleika Schpilkas í yndislegu veðri á Jómfrúartorginu í gær. Svo eftir að hitta gamla bekkjarsystur síðan ég var í 0 -2. bekk og kjafta mikið og lengi við hana, var pizza mössuð á Horninu og undir miðnætti fór ég á Kaffi Kúltur(-a/-e.. whatever) það var svo bjart að það var ekki nokkur glóra (of mikil glóra?). Voru því eftirlegutjúttkindur að til 6 í morgun og var Ölstofan lokabrynningarstaðurinn áður en gengið var heim í góðum félagsskap í góða veðrinu.
Í kvöld prófaði ég svona übereinfaldan rétt. Spagetti með ruccola, furuhnetum og svakaólívuolíu (bara gleymdi að ég hafði ætlað að hafa rauðvín með, svona upp á Miðjarðarhafsstemminguna). Diet Coke er ekki alveg jafnclassy, ég man það bara næst. En þetta var mjög gott, ég fæ mér örugglega svona aftur.
:: geimVEIRA:: kl. 21:19:: [+] ::
...
:: laugardagur, júní 11, 2005 ::
Your brain: 80% interpersonal, 80% visual, 60% verbal, and 180% mathematical!
Congratulations on being 400% smart! Actually, on my test, everyone is. The above score breaks down what kind of thinking you most enjoy doing. A score above 100% means you use that kind of thinking more than average, and a score below 100% means you use it less. It says nothing about how good you are at any one, just how interested you are in each, relatively. A substantial difference in scores between two people means, conclusively, that they are different kinds of thinkers.
Matching Summary: Each of us has different tastes. Still, I offer the following advice, which I think is obvious:
Don't date someone if your interpersonal percentages differ by more than 80%.
Don't be friends with someone if your verbal percentages differ by more than 100%.
Don't have sex with someone if their math percentage is over 200%.
My test tracked 4 variables How you compared to other people your age and gender:
Ég var að sjá Silvíu Nótt í fyrsta skipti og leist ferlega vel á. Hún er Johnny National ársins 2005 held ég barasta! Fólk sem heldur að hún sé for real sannar það bara að það þarf ákveðið lágmarks IQ til að skilja kaldhæðinn húmor. Skilurru?!
:: geimVEIRA:: kl. 23:30:: [+] ::
...
:: miðvikudagur, júní 08, 2005 ::
Jæja góðir hálsar
Með fullri virðingu fyrir kollegum sem leika munu annað kvöld og ég af eiginhagsmunagæslu get ekki frekar hér,híhíh, tilkynnist hérmeð að það er skyldumæting annað kvöld á Hressó í Austurstræti. Þar ætla ég við þrjá snillinga að mæta um kl. 22 og taka ljúfleika poppað jazzað eðalpopp í bland við groove og vonandi eitthvað funkí.. smá funkí fyrir mig yes.
Shaolin kung fu - þvíííííílíkt og annað eins! Æfa sig í armbeygjum á 4 puttum í klukkutíma á dag, æfa sig að slá vatn í tunnu og baunir í tunnu 2 tíma á dag, láta lemja hausnum á sér í sandpoka og standa á haus í 2 tíma á dag, berja í vegginn í klukkutíma í senn, þetta er svo geðveikt að þetta er kúl.
:: geimVEIRA:: kl. 17:43:: [+] ::
...
Ég er að fara í afmæli á eftir og bara nennti engan veginn út í blómabúð, svo ég bara smíðaði eitt stykki mynd, voðagaman að gera pastelmyndir. Hér er hún. Svo eldaði ég svakagott dahl. Namminamm! Jæja, best að hafa sig til.
:: geimVEIRA:: kl. 20:16:: [+] ::
...
You talkin' to me? Það er stundum hræðileg aðstaða að vita "of mikið" um innviði "kerfisins". Ég hef verið á hinum endanum við erfiðar aðstæður hjá "fellow bloggers". Ég veit slatta um hvernig hlutir virka og geri mér grein fyrir ýmsum misskilningum hjá fólki. Veit líka að það er margt sem fólk leyfir sér að bölsótast út í sem hefur nákvæmlega enga tengingu í veruleikann, fólk leyfir sér að drulla yfir svo margtí sinni fávisku að maður á ekki orð. Ég þurfi í kvöld til dæmis endilega að lenda í reiðum leigubílstjóra with issues.... mig langaði að eipa á hann yfir 80% af því sem hann var að bulla um "kerfið", benda á svo margt margt sem hann var fullkomlega í ruglinu með, en það er bara ekki þess virði, "sá vægir sem vitið hefur meira" og allt það. Samt furðulega oft sem ég hef lent á rugluðum leigubílstjórum, kynþáttafordómaógeðum og svona.
Það var allavega mjög gaman á tónleikunum í kvöld, hitti óvart einn mann - alltaf smá óþægilegt mixing business with pleasure, en kannski var það bara gott mál... whatever skiptir ekki. Nú þegar þessar pestir fara að drullast í burtu þarf maður að smíða sér gig. Eru ekki allir orðnir spenntir að heyra í geimVEIRUNNI annars ha? Nei ég bara spyr mynduð þið ekki mæta ha? Anyone? Anyone?
:: geimVEIRA:: kl. 02:36:: [+] ::
...
:: fimmtudagur, júní 02, 2005 ::
Skjaldkirtils-overburn og veirulík Í dag fékk ég dauðar lifrarbólgu A og lifrarbólgu B veirur, og veiklaðar mislinga- hettusóttar og rauðu hundaveirur (MMR eins og litlu börnin hoho). Það er því mikið stuð hjá mínu ónæmiskerfi núna get ég ímyndað mér. Svo fékk ég það endanlega á hreint að, eins og læknirinn orðaði það: "skjaldkirtillinn væri brunninn yfir", þetta er víst búið að vera yfirvofandi eftir einhverja ofvirkni sem eyðilagði víst græjurnar fyrir einhverjum árum. Ég hef verið boarderline í einhver ár en síðasta mæling sýndi tvöföldun á TSH og helmingslækkun á T4 (svona fyrir læknafólkið) svo ég þarf að fara lyf til æviloka - úff. Skárra en að vera í hormónaruglinu áfram allavega örugglega, gott að fá staðfestingu á að það sé eitthvað á seyði, maður hefur ekki beint verið í lagi lengi, ég hlakka nú bara til að sjá hvernig manni verður af þessu.
Ég er enn hóstandi eins og mofo en er miklu skárri samt - held að kerfið hafi bara ekki alveg höndlað öll lætin að fá svona bólusetningar um daginn, hef eiginlega verið meira og minna með kvef-, ælu- og magapestir síðan. Núna er ég með hausverk, vona að það þýði samt ekki að ég fari að verða meira veik. Þetta er alveg orðið meira en nóg speinkjú verrý möts.
Í kvöld kl. 22 er skyldumæting á Kvartett Eyjólfs Þorleifssonar á Pravda Bar.
Nú ætla ég bara að fá mér ibúfen ofan í vítamínin, veirulíkin, hormónana hóstasaftina og ofnæmistöflurnar. Blessi vestræn læknavísindi í bak og fyrir. Amen.
:: geimVEIRA:: kl. 18:32:: [+] ::
...